29. mars 2021

Framlag Íslands til loftslagsvænni framtíðar

Grænvangur er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir og sinnir kynningarstarfi á framlagi Íslands til loftslagsmála á erlendri grundu.

Á ársfundi Grænvangs 2021 sem fór nýverið fram var fjallað um grunninn sem íslensk stjórnvöld, íslenskt atvinnulíf og Grænvangur hafa lagt að loftslagsvænni framtíð og mikilvægi þess að halda áfram á sömu braut með góðri samvinnu.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði m.a. í ávarpi sínu:

„Grænvangur er mikilvægur samstarfsaðili bæði hvað varðar þátttöku atvinnulífs í að stuðla að því að markmiði Íslands um samdrátt í losun og kolefnishlutleysi 2040 nái fram að ganga sem og auðvitað því mikilvæga starfi sem fer fram á erlendum vettvangi við að kynna árangur og sérfræðiþekkingu Íslendinga í nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa.”

Sigurður Hannesson, stjórnarformaður Grænvangs og framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins sagði m.a. í ræðu sinni:

„Með því að efla eftirspurn eftir íslenskri sérfræðiþekkingu erlendis, örvum við hagvöxt, sköpum eftirsótt störf og ýtum undir nýsköpun á þessu sviði en Íslendingar hafa nú þegar þróað loftslagslausnir sem skipta máli fyrir heiminn.”

Grænvangur er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir og sinnir kynningarstarfi á framlagi Íslands til loftslagsmála á erlendri grundu. Auk þess tekur Grænvangur virkan þátt í að tengja íslenskt atvinnulíf og stjórnvöld saman til að ná sameiginlegu markmiði um kolefnishlutleysi 2040.

Loftslagsáætlun atvinnulífsins
Grænvangur vinnur nú að því að gefa út Loftslagsáætlun atvinnulífsins í samstarfi við Samtök atvinnulífsins og sex aðildarsamtök SA, Samtök iðnaðarins, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök verslunar og þjónustu, Samorku og Samtök fjármálafyrirtækja. Þá taka Bændasamtök Íslands einnig þátt í vinnunni.

Þegar Loftslagsáætlun atvinnulífsins liggur fyrir verður búið að greina stöðu hverrar atvinnugreinar með tilliti til losunar og aðgerða, kortleggja tækifæri til úrbóta og setja fram ábendingar um aðgerðir sem hvetja til frekari árangurs.

Íslandsstofa og Grænvangur vinna saman að því að kynna Ísland sem leiðandi land á sviði sjálfbærni í öflugu samstarfi við íslensku sendiráðin og íslensk fyrirtæki. Sérstök áhersla er lögð á sögu Íslendinga af nýtingu endurnýjanlegrar orku og hringrásarlausnum undir merkjum Green by Iceland.

Horfðu á vef Grænvangs
Á fundinum fjallaði Eggert Benedikt Guðmundsson, forstöðumaður vettvangsins um helstu áherslumál Grænvangs, Karl Guðmundsson, forstöðumaður útflutnings- og fjárfestinga hjá Íslandsstofu fjallaði um Ísland sem leiðandi land í sjálfbærni. Þá sögðu starfsmenn þriggja íslenskra verkfræðistofa frá verkefnum sem þær hafa komið að á heimsvísu.

Steinþór Gíslason frá Eflu sagði frá frá velgengni í Noregi sem byggist á framúrskarandi sérfræðiþekkingu, Sandra Rán Ásgrímsdóttir frá Mannviti og Carine Chatenay frá Verkís sögðu frá mikilvægum jarðhitaverkefnum í Afríku sem hafa bein áhrif á sjálfbæra þróun.

Birta Kristín Helgadóttir, verkefnastjóri hjá Grænvangi, stýrði fundinum. Nánari umfjöllun um hann má nálgast á vef Grænvangs ásamt upptöku.

Sjá nánar á vef Grænvangs

Sjá allar fréttir