30. júní 2023

Ferðamenn hvattir til að borða íslenskan fisk í heimsókn sinni

Ljósmynd

Fjölmargir veitingastaðir um land allt sem bjóða upp á sjávarfang taka þátt í verkefninu.

Í nýrri markaðsherferð Íslandsstofu eru gestir sem sækja Ísland heim hvattir til að snæða fisk á meðan þeir dvelja hér á landi. Herferðin ber heitið „Icelandic Nature – It Goes Great with Fish“ og í henni er íslensk náttúra pöruð saman við ljúffenga fiskrétti. Í kynningarmyndböndum lýsir sögumaður náttúrufyrirbærum með orðalagi sem gæti allt eins átt við dýrindis rétti á fínum veitingastað.

Niðustöður könnunar sem Maskína framkvæmdi fyrir Íslandsstofu leiddi í ljós að 79% ferðamanna neyta sjávarfangs á meðan þeir dveljast hér, en 39,5% svarenda borða íslenskan fisk einu sinni eða sjaldnar. Mark­miðið er að fá ís­lensk­an fisk oft­ar á disk ferðamanna á meðan á heim­sókn þeirra stend­ur. Þá kem­ur jafn­framt fram í könn­un­inni að um 44% ferðamanna gefa ís­lensk­um mat háa ein­kunn, átta til tíu, en 79% gefa ís­lensk­um fisk góða ein­kunn, þar af 36% sem gefa hon­um tíu.

Herferðin verður keyrð á samfélagsmiðlum næstu mánuðina. Á þeim tíma munu ferðalangar verða vör við ýmsar auglýsingar og skilaboð þar sem vakin er athygli á gæðum íslenskra sjávarafurða. Sýnt er fram á hversu auðvelt er að finna ljúffengan fisk, nánast hvar sem er á á landinu. Fjölmargir veitingastaðir um land allt sem bjóða upp á sjávarfang taka þátt í verkefninu. Staðirnir eru skráðir inn á Íslandskort með nákvæmri staðsetningu til að auðvelda gestum leiðina að íslenska fiskinum.  Enginn ætti að fara af landi brott án þess að smakka.    

„Það er ánægju­legt að sjá hve mjög er­lend­ir ferðamenn kunna að meta ís­lensk­an fisk. Það staðfest­ir það sem við höf­um lengi vitað, að við erum að bjóða frá­bæra vöru. Okk­ar mark­mið er fyrst og fremst að fá er­lenda gesti til þess að borða fisk oft­ar, og að gera ís­lenskt sjáv­ar­fang að hluta af upp­lif­un þeirra hér á landi,” sagði Pétur Þ. Óskars­son, framkvæmdastjóri Íslandsstofu.

Herferðin er liður í markaðsverkefninu Seafood from Iceland. Verkefnið miðar að því að auka virði og útflutningsverðmæti með því að auka vitund og bæta viðhorf markhóps gagnvart íslenskum sjávarafurðum. Um 30 íslensk sjávarútvegsfyrirtæki taka þátt í verkefninu sem rekið er af Íslandsstofu.

Sjá nánar á vefsíðu herferðarinnar www.seafoodfromiceland.com/great-with-fish

Ferðamenn hvattir til að borða íslenskan fisk í heimsókn sinni

Sjá allar fréttir