14. júní 2022
Ætlar þú með á Slush og TechBBQ?
Í haust og vetur stendur Íslandsstofa fyrir sendinefndum á tvo viðburði á sviði hugvits, nýsköpunar og tækni - TECHBBQ sem fer fram í Kaupmannahöfn í september og SLUSH í Helsinki í nóvember.
Íslandsstofa hvetur áhugasöm fyrirtæki, fjárfesta og fólk úr stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi til að slást með í för.
Í báðum tilvikum verður gerð upplýsingasíða um þátttakendur sem notuð er fyrir fjölmiðla og samfélagsmiðlateymi Íslandsstofu, auk þess sem henni er miðlað til fjárfesta sem sækja ráðstefnuna.
Athygli er vakin á því að takmarkaður fjöldi miða er í boði á báða viðburði og því borgar sig að bregðast við sem fyrst. Þau sem eru þegar búin að tryggja sér miða geta samt sem áður skráð sig í sendinefndina og tryggt að fyrirtæki sitt verði sýnilegt í kynningarefni Íslandsstofu.
Sendinefnd á TechBBQ í Kaupmannahöfn 14. og 15. september 2022
Sendinefnd á SLUSH í Helsinki 17. og 18. nóvember 2022
Nánari upplýsingar veitir Jarþrúður Ásmundsdóttir, fagstjóri hugvits, nýsköpunar og tækni hjá Íslandsstofu, jarthrudur@islandsstofa.is