Ljósmynd

Mynd: Carbfix á Hellisheiði

Markaðssókn

Erlendar fjárfest­ingar

Erlendar fjárfestingar

Íslandsstofa kynnir Ísland sem áhugaverðan kost fyrir erlenda fjárfestingu í því skyni að auka fjölbreytni í atvinnulífinu og fá aukið fjármagn til uppbyggingar til lengri tíma.

Áherslur og markmið

Unnið er í samræmi við samþykkta stefnu stjórnvalda um erlendar fjárfestingar. Í virku markaðsstarfi við að ná til erlendra fjárfesta er meðal annars stuðst við niðurstöður samkeppnisgreininga þar sem búið er að kortleggja tækifæri og samkeppnisforskot Íslands á tilteknum sviðum.

Leitað er að sviðum þar sem sérstaða eða aðstæður á Íslandi eru ákjósanlegar fyrir uppbyggingu og falla vel að þeim markmiðum með eflingu beinna erlendra fjárfestinga að skapa ný störf, nýja þekkingu og ný verðmæti. Meðal þeirra áherslusviða sem Íslandsstofa hefur beitt sér undanfarið eru líftækni, fjölnýting jarðvarma og gagnaver.

Vefur Invest in Iceland

Erlendar fjárfestingar