![annual report hero image](https://images.prismic.io/islandsstofa/13eef9f3-04d6-40f0-ad46-cee6c17f8218_GFR52151-Edit_high_res.jpg?ixlib=gatsbyFP&auto=compress%2Cformat&fit=max&w=7903&h=5271)
Ársskýrsla Íslandsstofu 2021
![feature image](https://images.prismic.io/islandsstofa/61cc0d1e-02bf-4bb3-944a-244d3a5c2251_MBL_Thridrangar_1500.jpg?ixlib=gatsbyFP&auto=compress%2Cformat&fit=max&w=1608&h=1005)
Vatnaskil
Segja má að vatnaskil hafi orðið á seinasta ári eftir mikið fall útflutningstekna árið áður. Á seinasta ári jókst útflutningur um rúmlega 20% frá árinu 2020 og nam ríflega 1.230 milljörðum króna. Aukninguna má meðal annars rekja til hækkana á álverði og þess að ferðaþjónustan er að byrja að ná vopnum sínum.
![feature image](https://images.prismic.io/islandsstofa/5a6ba08d-5764-41a2-a921-222efb2a1436_Ragna%20Cell7%20Volcano%20hero%20image.jpg?ixlib=gatsbyFP&auto=compress%2Cformat&fit=max&w=2000&h=1368)
Markaðsstarfið
Á árinu 2021 var unnið ötult markaðsstarf, bæði þvert á áherslur og fyrir einstakar útflutningsgreinar. Stærsta verkefnið er Ísland - Saman í sókn sem stofnað var til í þeim tilgangi að auka eftirspurn eftir íslenskri ferðaþjónustu, styrkja ímynd Íslands sem áfangastaðar og viðhalda samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu og annarra útflutningsgreina á tímum heimsfaraldurs.
![feature image](https://images.prismic.io/islandsstofa/fa311ce5-3d97-4e2c-bc14-ed8c597da645_iStock-Boston.jpg?ixlib=gatsbyFP&auto=compress%2Cformat&fit=max&w=2158&h=1388)
Þjónusta Íslandsstofu
Íslandsstofa býr að víðtæku neti sérfræðinga Íslandsstofu, auk viðskiptafulltrúa utanríkisþjónustunnar, erlendra ráðgjafa, og þjónustu viðskiptafulltrúa á vegum Business Sweden. Íslandsstofa starfar í samræmi við samþykkta stefnu stjórnvalda um beinar erlendar fjárfestingar. Heimstorg Íslandsstofu miðlar sérþekkingu og leiðbeiningum um samstarf í þróunarlöndum.
![feature image](https://images.prismic.io/islandsstofa/70863787-8728-4ea8-a0f3-d7c03c34cb6c_SOS_8174_bananar_2.jpg?ixlib=gatsbyFP&auto=compress%2Cformat&fit=max&w=2101&h=1359)
Sjálfbærnistefna
Til að styðja við framtíðarsýn okkar um sjálfbærni er mikilvægt að allt starf Íslandsstofu byggi á gildum sjálfbærni og sé til fyrirmyndar í umhverfis- og loftslagsmálum, bæði innan og utan vinnustaðarins. Sjálfbærnistefna Íslandsstofu verður höfð að leiðarljósi í rekstri Íslandsstofu til framtíðar.