annual report hero image

Ársskýrsla Íslandsstofu 2021

Tölur úr markaðsstarfinu

Íslandsstofa rekur ýmis markaðsverkefni í þágu íslenskra útflutningsgreina í samstarfi við innlenda og erlenda hagaðila.

Skoða markaðsstarfið á árinu

5000

Umfjallanir í erlendum miðlum á árinu

130 milljón

Áhorf á kynningarmyndbönd

8 milljarðar

Snertingar við markhópa á árinu

feature image

Vatnaskil

Segja má að vatnaskil hafi orðið á seinasta ári eftir mikið fall útflutningstekna árið áður. Á seinasta ári jókst útflutningur um rúmlega 20% frá árinu 2020 og nam ríflega 1.230 milljörðum króna. Aukninguna má meðal annars rekja til hækkana á álverði og þess að ferðaþjónustan er að byrja að ná vopnum sínum.

Lesa ávarp framkvæmdastjóra og formanns Íslandsstofu

feature image

Áherslur í útflutningi

Starfsemi Íslandsstofu miðar við sex áherslugreinar í útflutningi. Mikil fjölbreytni og umsvif einkenndu síðastliðið ár, öflugt markaðsstarf var unnið að venju og ný markaðsverkefni litu dagsins ljós. Hér má skoða starfsemi Íslandsstofu á árinu fyrir áherslurnar sex.

Sjá starfsemina á árinu

feature image

Markaðsstarfið

Á árinu 2021 var unnið ötult markaðsstarf, bæði þvert á áherslur og fyrir einstakar útflutningsgreinar. Stærsta verkefnið er Ísland - Saman í sókn sem stofnað var til í þeim tilgangi að auka eftirspurn eftir íslenskri ferðaþjónustu, styrkja ímynd Íslands sem áfangastaðar og viðhalda samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu og annarra útflutningsgreina á tímum heimsfaraldurs.

Sjá árangur af markaðsstarfi okkar á árinu

feature image

Þjónusta Íslandsstofu

Íslandsstofa býr að víðtæku neti sérfræðinga Íslandsstofu, auk viðskiptafulltrúa utanríkisþjónustunnar, erlendra ráðgjafa, og þjónustu viðskiptafulltrúa á vegum Business Sweden. Íslandsstofa starfar í samræmi við samþykkta stefnu stjórnvalda um beinar erlendar fjárfestingar. Heimstorg Íslandsstofu miðlar sérþekkingu og leiðbeiningum um samstarf í þróunarlöndum.

Lesa meira um þjónustuframboð Íslandsstofu

feature image

Ársreikningur Íslandsstofu

Ársreikningur Íslandsstofu gefur góða sýn yfir stöðu Íslandsstofu í árslok 2021, rekstrarárangur og fjárhagslega þróun á árinu. Hér má sjá upplýsingar úr ársreikningi.

Skoða ársreikning

feature image

Sjálfbærnistefna

Til að styðja við framtíðarsýn okkar um sjálfbærni er mikilvægt að allt starf Íslandsstofu byggi á gildum sjálfbærni og sé til fyrirmyndar í umhverfis- og loftslagsmálum, bæði innan og utan vinnustaðarins.  Sjálfbærnistefna Íslandsstofu verður höfð að leiðarljósi í rekstri Íslandsstofu til framtíðar.

Lesa meira um sjálfbærnistefnuna

Ársskýrsla Íslandsstofu