Útflutningur

Útflutn­ings­þjón­usta

Útflutn­ings­þjón­usta

Við aðstoðum íslensk fyrirtæki við að ná brautargengi á erlendum mörkuðum.

rich text image

Útflutningsþjónusta Íslandsstofu

Hlutverk Útflutningsþjónustu Íslandsstofu er að veita íslenskum fyrirtækjum brautargengi á nýja markaði og stuðning við vöxt erlendis. Þjónustan er veitt í gegnum víðtækt tengslanet, með hagnýtri upplýsingagjöf og öflugri ráðgjöf sem gerir fyrirtækjum kleift að efla útrás og vaxa hraðar. 

Nordic Innovation House 

Nordic Innovation House er samstarfsverkefni norðurlandanna um stuðning við starfsemi frumkvöðla, nýsköpunar og útflutnings inn á skilgreinda vaxandi markaði. Alls eru starfandi fimm hús, tvö í Bandaríkjunum og þrjú í Asíu. Nordic Innovation House opnar fyrirtækjum dyr inn í samfélag tækni og iðnaða á viðkomandi svæðum. Þau standa fyrir fjölbreyttu viðburðahaldi, tengslamyndun og veita sumstaðar aðgengi að vinnuaðstöðu. Sjá nánar

Markaðsaðstoð

Samstarf um ráðgjafaþjónustu

feature image

Business Sweden

Íslandsstofu gerði á árinu samkomulag við Business Sweden um aðgengi íslenskra fyrirtækja að ráðgjafaþjónustu þeirra. Alls starfa yfir 500 sérfræðingar og ráðgjafar á vegum Business Sweden í rúmlega fjörtíu löndum víða um heim. Í þjónustunni felst meðal annars stefnumótandi ráðgjöf auk viðskipta- og lagalegrar aðstoðar við margs konar verkefni að ónefndu aðgengi að víðfeðmu tengslaneti viðskiptalífsins í hverju landi. Þjónustan er veitt á markaðsforsendum og fer kostnaður eftir eðli og umfangi hvers verkefnis fyrir sig.  

Nú geta íslensk fyrirtæki einnig sótt um endurgreiðslu á hluta kostnaðar til Íslandsstofu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. 

Nánari upplýsingar

Ársskýrsla 2021 - Útflutningsþjónusta Íslandsstofu