Dagsetning:
21. apríl 2024
Viðskiptastjóri orku og grænna lausna óskast
Umsóknarfrestur er til 21. apríl
Mynd: HS Orka
Íslandsstofa auglýsir eftir viðskiptastjóra á sviði orku og grænna lausna. Meginmarkmið starfsins er að vinna samkvæmt útflutningsstefnu Íslands að viðskiptaþróun og kynningarmálum á sviði orku og grænna lausna. Styðja við kynningu á vöru- og þjónustuframboði íslenskra fyrirtækja í orku og grænum lausnum á erlendum vettvangi fyrir útflutning eða erlenda fjárfestingu með skipulagningu viðburða, efnisgerð, almannatengslum, kynningum o.fl.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulagning viðburða, efnisgerð, almannatengsl, kynningar o.fl.
Greina tækifæri á erlendum mörkuðum í samstarfi við hagaðila
Mynda og viðhalda tengslum við fyrirtæki og aðra mikilvæga hagaðila
Áætlanagerð og árangursmælingar
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfinu
Reynsla í stjórnun verkefna og uppsetningu verk- og fjárhagsáætlana
Þekking og reynsla á sviði orku og grænna lausna er kostur
Færni til að tjá sig í ræðu og riti á ensku og íslensku
Menningarlæsi, frumkvæði, samskipta- og samstarfshæfni, jákvæðni og hugmyndaauðgi
Umsóknarfrestur er til 21. apríl nk. Hægt er að sækja um starfið á vef Alfreð.is