
Listir og skapandi greinar
Listir og skapandi greinar
Á undanförnum árum hefur verið öflugur vöxtur í útflutningsverðmætum skapandi greina.

Íslenskar listir og skapandi greinar í útrás
Við kynnum Ísland sem skapandi miðstöð, upprunaland menningarafurða og eftirsóknarverðan stað til sköpunar á sviði tónlistar, kvikmynda, bókmennta, myndlistar, sviðslista, hönnunar og arkítektúrs.
Áhersla er lögð á traust samstarf við miðstöðvar skapandi greina, faglega stefnumótun í kynningarmálum sem stuðla að aukinni þekkingu og eftirspurn lista og skapandi greina á erlendri grundu.
Verkefni ársins voru öll unninn í góðu samstarfi við miðstöðvar skapandi greina, sendiráð Íslands erlendis og þau ráðuneyti sem verkefnið Skapandi Ísland fellur undir.
Samstarfsverkefni
Skapandi greinar eru framtíðin

Skapandi Ísland
Skapandi Ísland er markaðsverkefni skapandi greina og er samstarfsverkefni Íslandsstofu og stjórnvalda. Verkefnið er unnið í samstarfi við miðstöðvar listgreina, sendiráð Íslands erlendis og fagfólks innan greinanna.
Skapandi Ísland snertir fjölmörg verkefni sem snúa að þátttöku Íslands í alþjóðlegum hátíðum og kaupstefnum sem skila verðmætum tengslum og viðskiptum fyrir listir og skapandi greinar.
Listir og skapandi greinar
Upptaka kvikmynda á Íslandi

Film in Iceland
Á árinu 2022 var skrifað undir nýjan þjónustusamning á milli menningar- og viðskiptaráðuneytisins og Íslandsstofu um fjármögnun á verkefninu til loka ársins 2026.
Mikið var um erlend verkefni á árinu 2022, en heildarveltan af erlendum verkefnum voru rúmir 12 milljarðar króna á árinu Fyrst má þar nefna HBO verkefnið True Detective sem er stærsta sjónvarpsverkefnið í sögu Íslands.