Viðtalstímar við sendiherra Íslands í London
20. október 2020
Sturla Sigurjónsson, verðandi sendiherra Íslands í London, verður til viðtals þriðjudaginn 20. október um viðskiptamál, menningartengd verkefni og önnur hagsmunamál þar sem sendiherrann getur orðið að liði. Auk Bretlands eru Írland, Jórdanía, Katar, Malta og Gíbraltar í umdæmi sendiráðsins.
Fundirnir fara fram í gegnum fjarfundaforritið Teams, en einnig er hægt að hafa viðtalið í gegnum síma.
Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Davíðsdóttir (adalheidur@islandsstofa.is).
