17. september 2021

Stærsta sjávarútvegssýning heims haldin í Barcelona

Íslandsstofa kannar áhuga fyrirtækja á þátttöku í stærstu sjávarútvegssýningu heims sem fram fer í Barcelona dagana 26. - 28. apríl 2022.

Íslandsstofa kannar áhuga fyrirtækja á þátttöku í stærstu sjávarútvegssýningu heims sem fram fer í Barcelona dagana 26. - 28. apríl 2022. Sýningin í Barcelona skiptist í tvær sýningar: Seafood Expo Global og Seafood Processing Global. Þetta er í raun sama sýning og haldin hefur verið í Brussel frá árinu 1994, nema á nýjum stað.

Sýningin er alþjóðleg og jafnan vettvangur alls hins besta og framsæknasta í heiminum sem sjávarútvegsfyrirtæki og aðilar sem þjónusta sjávarútveginn hafa upp á að bjóða.

Fjölmörg íslensk fyrirtæki hafa sótt Brussel sýninguna frá upphafi og stofnað þar til fjölda viðskiptatengsla. Gestir sem sýnendur eiga margir góðar minningar frá þessum vettvangi.

Nú er að hefjast nýr kafli í kynningarstarfi íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja í Barcelona. Eins og áður mun Íslandsstofa skipuleggja svæði undir hatti Íslands á báðum sýningum og hefur til umráða sýningarsvæði á besta stað. Fjölmörg íslensk fyrirtæki hafa þegar staðfest þátttöku í sýningunni, en ennþá er möguleiki á að slást í þann góða hóp.

Ef þú hefur áhuga á þátttöku eða vilt fá frekari upplýsingar, vinsamlega hafðu samband við Berglindi Steindórsdóttur, berglind@islandsstofa.is, fyrir 23. september nk.

Sjá einnig vef sýningarinnar


Sjá allar fréttir