Samtal við matvælageirann á Austurlandi
2. október 2018 10:00
Íslandsstofa, í samstarfi við Austurbrú, boðar til fundar á Egilsstöðum til að ræða tækifæri og áskoranir í útflutningi matvæla. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 2. október kl. 10:00-12:30 á Icelandair hótel Héraði á Egilsstöðum.
Fundurinn er fyrir aðila í framleiðslu og útflutningi matvæla og þá sem selja matvæli til erlendra ferðamanna. Allir áhugasamir um málefnið eru auk þess velkomnir á fundinn.
Starfsmenn á sviði matvæla, sjávarútvegs og landbúnaðar hjá Íslandsstofu munu kynna helstu verkefni Íslandsstofu og þjónustu sem nýst getur matvælaframleiðendum. Greint verður frá helstu niðurstöðum greiningar á gildi þess að nýta vottanir og upprunamerki matvæla í markaðsstarfi, sem Íslandstofa lét nýlega gera. Einnig er markmið fundarins að eiga samtal við matvælafyrirtæki á svæðinu; kynnast starfsemi þeirra, áherslum og viðhorfi varðandi útflutning og sölu matvæla til erlendra ferðamanna.
Austurbrú kynnir yfirlit um matvælaframleiðslu í fjórðungnum, möguleika og ónýtt tækifæri, sem og þjónustu Austurbrúar sem getur nýst matvælaframleiðundum í fjórðungnum og tengingu við Áfangastaðinn Austurland.
Fulltrúar matvælaframleiðenda á Austurlandi eru hvattir til að mæta og taka virkan þátt í umræðum um tækifæri og framtíðarsýn fyrir sitt svæði og hvernig Íslandsstofa getur sem best stutt við matvælaframleiðendur og útflytjendur matvæla á svæðinu.
Nánari upplýsingar um fundinn veitir Bryndís Eiríksdóttir, bryndis@islandsstofa.is, í síma 511 4000.
Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrirfram. Skráning hér.
