7. maí 2022

Starf forstöðumanns Grænvangs laust til umsóknar

Ljósmynd

Auglýst er eftir forstöðumanni Grænvangs, samstarfsvettvangs atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir. Um spennandi starf er að ræða sem snýr að stuðningi við loftslagsvegferð atvinnulífsins ásamt kynningu á framlagi Íslands og árangri í loftslagsmálum. Leitað er að drífandi og reynslumiklum leiðtoga með öfluga fagþekkingu og reynslu á sviði loftslagsmála og af markaðs- og kynningarmálum. Forstöðumaður er ráðinn af Íslandsstofu og stjórn Grænvangs og starfar innan Íslandsstofu.

Markmið Grænvangs er að bæta árangur Íslands í loftslagsmálum og miðla fjölbreyttu framlagi landsins á því sviði, stuðla að framgangi grænna lausna og efla samvinnu stjórnvalda og atvinnulífs varðandi aðgerðir í loftslagsmálum í samræmi við markmið stjórnvalda, þar með talið kolefnishlutleysi árið 2040. Þá vinnur vettvangurinn, í samstarfi við Íslandsstofu, að kynningu á íslensku hugviti og framleiðslu sem byggja á íslenskri orkuþekkingu og grænum lausnum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Kynna fjölbreytt framlag Íslands til loftslagsmála

  • Efla samstarf stjórnvalda og atvinnulífs um aðgerðir í loftslagsmálum þ.m.t. um kolefnishlutleysi árið 2040

  • Styðja við loftslagsvegferð atvinnulífsins og auka þátttöku fyrirtækja í grænu ferli, umbótaverkefnum og loftslagsvegferðinni

  • Styðja við markaðs- og viðskiptaþróunarstarf fyrirtækja tengt loftslagsmálum

  • Vekja athygli hérlendis sem og erlendis á framlagi Íslands og íslenskra fyrirtækja og hvetja til frekari framþróunar

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Þekking og brennandi áhugi á loftslagsmálum

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Leiðtogahæfni ásamt framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni

  • Þekking á íslensku atvinnulífi og stjórnsýslu

  • Drifkraftur, frumkvæði, jákvæðni og hugmyndaauðgi

  • Umfangsmikil reynsla af markaðs- og kynningarmálum ásamt reynslu af notkun samfélagsmiðla í markaðsstarfi

  • Þekking og reynsla af markaðssetningu á erlendum mörkuðum er æskileg

  • Reynsla af verkefnisstjórnun

  • Framúrskarandi ensku- og íslenskukunnátta skilyrði, önnur tungumálakunnátta er kostur

  • Færni og reynsla í að koma fram  

Sótt er um starfið á vef Intellecta.

Sjá allar fréttir