Viðburðir á næstunni
-

30.05.2013
Kortlagning útflutningsfyrirtækja sem framleiða íslenskar náttúruvörurFimmtudaginn 30. maí stendur Íslandsstofa fyrir kynningarfundi á kortlagningu fyrirtækja sem selja íslenskar náttúruvörur á erlendri grund. Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík kl.11–13.
-

07.06.2013
Fundur um markaðssetningu sjávarafurða í FrakklandiFöstudaginn 7. júní kl. 10-12 verður haldinn fundur um markaðinn fyrir sjávarafurðir í Frakklandi í sjóminjasafninu Víkinni.
-

04.08.2013
Frábært tækifæri til að kynna íslenskar vörur og þjónustu í BerlínÍslandsstofa undirbýr þátttöku íslenskra fyrirtækja á sölu- og sýningarsvæði Heimsmeistaramóts íslenska hestsins sem fer fram í Berlín, Þýskalandi dagana 4.-11. ágúst 2013.
-

16.08.2013
Viltu hitta erlenda fuglaskoðara á Birdfair?Íslandsstofa kannar áhuga fyrirtækja í ferðatengdri þjónustu við fuglaskoðara á þátttöku í sýningunni Birdfair sem fram fer í Rutland á Englandi dagana 16.-18. ágúst.
- 30.05.2013
Kortlagning útflutningsfyrirtæ.. - 07.06.2013
Fundur um markaðssetningu sjáv.. - 04.08.2013
Frábært tækifæri til að kynna .. - 16.08.2013
Viltu hitta erlenda fuglaskoða..
Skráðu þig á póstlistann
Reiselivsmessen í Osló
Íslandsstofa kannar nú áhuga fyrirtækja á þátttöku í ferðasýningunni Reiselivsmessen sem haldin verður dagana 11.-13. janúar 2013 í Osló.
Um er að ræða sýningu með áherslu á neytendur (B2C), en fyrri hluti föstudagsins 11. janúar er ætlaður fagfólki (B2B). Sýningin fer fram í Telenor höllinni í Osló.
Á sýningunni gefst fyrirtækjum í ferðaþjónustu tækifæri til að kynna sig, koma á viðskiptasamböndum og hitta neytendur. Sýningin hentar jafnframt fyrirtækjum sem stunda eða hafa áhuga á að hefja útflutning á vörum til Noregs.
Áhugasamir eru hvattir til hafa samband við Margréti Helgu Jóhannsdóttur, margret@islandsstofa.is
Nánari upplýsingar um Reiselivsmessen er að finna á vef sýningarinnar
Til baka
Útflutningsskrefin
-
Undirbúningur
Kortlagning markaða, gagnabankar, gátlistar, upplýsingar um tolla, regluverk og tæknileg atriði
-
Ráðgjöf og þjálfun
Verkefni og námskeið fyrir fyrirtæki og starfsgreinar, tengslamyndun og upplýsingar um handleiðslu
-
Aðstoð á markaði
Þjónustu- og ráðgjafanet á mörkuðum, val á samstarfaðilum, sýningar og sendinefndir

