Inspired by Iceland
19.09.2012

Nýting jarðvarma í Póllandi

Þann 19. september nk. verður haldin ráðstefna í Varsjá í Póllandi um möguleika á frekari nýtingu jarðhita þar í landi. Á ráðstefnunni munu pólskir sérfræðingar og fræðimenn halda erindi um málefnið. Þá kynna fjórir sérfræðingar frá Íslandi þá tækni og þróun sem orðið hefur í nýtingu jarðvarma hérlendis á undanförnum árum. Vonir standa til að hægt verði að nýta þekkingu og krafta íslenskra verkfræðifyrirtækja við jarðvarmavinnslu í Póllandi í framtíðinni og er ráðstefnan mikilvægt skref í að koma því á framfæri við þarlenda hagsmunaaðila.

Að ráðstefnunni standa Íslandsstofa og iðnaðarráðuneytið, í samvinnu við Sendiráð Íslands í Berlín.

Pólsk stjórnvöld hafa sýnt málinu mikinn áhuga og leggja m.a. til fundaraðstöðu og hafa auk þess útvegað leiðandi ræðumenn í umræddum málefnum til að tala á fundinum.

Ráðstefnan er opin öllum og fer fram í húsnæði Efnahagsráðuneytis Póllands við Plac Trzech Krzyży 3/5, í Varsjá – sölum  A, B og C og hefst kl 9:00 að staðartíma. Skráning við inngang.

Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@islandsstofa.is eða í síma 511 4000.


Til baka

Útflutningsskrefin

  • Undirbúningur

    Kortlagning markaða, gagnabankar, gátlistar, upplýsingar um tolla, regluverk og tæknileg atriði

  • Ráðgjöf og þjálfun

    Verkefni og námskeið fyrir fyrirtæki og starfsgreinar, tengslamyndun og upplýsingar um handleiðslu

  • Aðstoð á markaði

    Þjónustu- og ráðgjafanet á mörkuðum, val á samstarfaðilum, sýningar og sendinefndir

Íslandsstofa  /  Sundagarðar 2  /  Sími 511 4000  /  Fax 511 4040  /  islandsstofa@islandsstofa.is
"));