Viðskiptasendinefndir 2011
Viðskiptasendinefndir opna íslenskum fyrirtækjum dyr að nýjum mörkuðum. Íslandsstofa skipuleggur fjölda slíkra ferða á ári hverju, á nágrannamarkaði en einnig á fjarlægar slóðir.
Markmið viðskiptasendinefnda er að leita viðskiptatækifæra, efla tengslin við fyrirtæki og koma á nýjum samböndum erlendis. Viðskiptasendinefndir gegna þannig mikilvægu hlutverki í sókn íslenskra fyrirtækja á erlenda markaði og hafa skilað þeim góðum árangri, s.s. fyrirtækjum í orkuiðnaði, ferðaþjónustu, sjávarútvegi eða á sviði fjárfestinga.
Mismunandi áherslur
Viðskiptasendinefndir eru skipulagðar með mismunandi hætti, eftir því hverjar áherslur eru, en þátttakendur eru fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum.
Könnunarferðir
Viðskiptasendinefndir funda með fyrirtækjum, stofnunum, bönkum, ráðgjafafyrirtækjum og öðrum aðilum sem veitt geta upplýsingar um viðskiptaumhverfið og tækifæri á markaði. Markmiðið er að kanna aðstæður og stuðla að tengslum.
Fundaferðir
Heimsóknir viðskiptasendinefnda byggja á fyrirfram skipulögðum fundum, þar sem höfuðáhersla er lögð á að mæta óskum og þörfum hvers fyrirtækis. Unnið er í nánu samstarfi við erlenda sérfræðinga á viðkomandi markaði.
Vegsaukaferðir
Efnt er til ferða viðskiptasendinefnda í tengslum við opinberar heimsóknir íslenskra ráðamanna. Fyrirtæki njóta góðs af jákvæðri athygli sem fulltrúar Íslands vekja, t.d. í opinberum móttökum, við undirritun samninga eða með þátttöku í ráðstefnum.
Viðburðaferðir
Heimsóknir viðskiptasendinefnda eru skipulagðar í tengslum við ráðstefnur, sýningar eða álíka viðburði ytra. Áhersla er lögð á að koma á viðskiptasamböndum.
---- ----
Fyrirhugaðar viðskiptasendinefndir 2011
18. janúar - Ferðakaupstefna til Rússlands
Íslandsstofa tekur þátt í ferðakaupstefnu í St. Pétursborg í Rússlandi. Er það í beinum tengslum við þátttöku í ferðasýningunni MATKA sem haldin er í Helsinki í Finnlandi dagana 20.- 23. janúar. Gert er ráð fyrir að þátttakendur taki þátt í báðum viðburðunum.
Kaupstefnan er skipulögð í samvinnu við Airtoch í Finnlandi og Travel Trade Gasette – Russia og mun kynningarefni einnig verða notað á Luxurey Travel Mart sýningunni í Moskvu sem haldin verður 15. mars. Á kaupstefnuna verður boðið fulltrúum ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjanda auk fjölmiðla.






