Ef þú sérð ekki póstinn smelltu hér

4. tbl. 2009

Að tala fyrir Íslands hönd

Málþing sem ber yfirskriftina Að tala fyrir Íslands hönd verður haldið í Salnum í Kópavogi, miðvikudaginn 20. maí kl. 8.15-12.00. Meðal annars verða kynntar niðurstöður úr viðhorfsrannsókn sem Útflutningsráð og Ferðamálastofa hafa látið gera í þremur löndum um viðhorf almennings til Íslands. Nánar >

Sjávarútvegssýningin Seafood Processing America, Boston 2010

Sjávarútvegssýningin í Boston, Seafood Processing America, fer fram dagana 14.-16. mars 2010. Sýningin fer fram árlega og er haldin samhliða Boston Seafood Show sem haldin hefur verið sl. 26 ár. Undirbúningur fyrir næstu sýningu er hafinn. Nánar >

Fuglaskoðun á Íslandi – stofnun samtaka

Útflutningsráð hefur ásamt samstarfsaðilum unnið að undirbúningi við að skoða tækifæri til aukinnar markaðssóknar á fuglaskoðun í ferðaþjónustu á Íslandi. Stofnfundur samtakanna verður haldinn miðvikudaginn 20. maí, kl. 13.00-15.00 á Hilton Hótel Nordica. Nánar >

Útskrift í ÚH-verkefninu

Miðvikudaginn 27. maí nk. mun Útflutningsráð útskrifa nítjánda hópinn úr hinu sívinsæla fræðsluverkefni Útflutningsaukning og hagvöxtur. Í þetta skiptið útskrifast átta fyrirtæki. Nánar >

Viðskiptasendinefnd til Gdansk, Gdynia og Varsjár í Póllandi

Ferðin er áformuð dagana 6.-9. október og gert er ráð fyrir að hefja fundadagskrá í Gdansk og fara síðan til Varsjár. Viðskiptafundir verða skipulagðir af þarlendum ráðgjöfum sem setja upp fundi með áhugasömum samstarfsaðilum í samræmi við óskir íslensku þátttakendanna. Nánar >
Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér