Ef þú sérð ekki póstinn smelltu hér

3. tbl. 2009

Leitar hugurinn til Kína?

Pétur Yang Li, viðskiptafulltrúi sendiráðs Íslands í Peking verður með viðtalstíma dagana 21. og 22. apríl nk. Einnig verður haldinn morgunverðarfundur miðvikudaginn 22. apríl um kynningarátak á íslenskum vörum og þjónustu í Kína. Nánar >

Náðu árangri í erlendum útboðum

Útflutningsráð Íslands stendur fyrir námskeiði um erlend útboð, þar sem farið verður yfir tilboðsferlið, allt frá upplýsingaöflun til hagnýtra ráða við tilboðsgerð. Námskeiðið verður haldið miðvikudaginn 13. maí kl. 09.00-17.00 á Radisson SAS Hótel Sögu. Nánar >

Viðskiptasendinefndir á næstunni

Útflutningsráð skipuleggur ferð viðskiptasendinefndar til Færeyja 25.-27. maí næstkomandi. Færeyjar eru nálægur markaður þar sem tækifæri er fyrir íslensk fyrirtæki að kynna vörur sínar og þjónustu. Ennfremur er verið að kanna áhuga fyrirtækja á viðskiptasendinefndum til nokkurra landa í haust. Nánar >

Stóraukið samstarf í kynningar- og markaðsstarfi

Össur Skarphéðinsson utanríkis- og iðnaðarráðherra, Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri og Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs, skrifuðu undir samning þ. 26. mars, milli utanríkisráðuneytisins, Ferðamálastofu og Útflutningsráðs um stóraukið samstarf í landkynningar- og markaðssamstarfi erlendis.  Nánar >

Hugmyndatorg á Ferðafagnaði 2009

Ferðafagnaður verður haldinn í sjötta sinn laugardaginn 18. apríl næstkomandi. Viðburðurinn býður upp á möguleika í nýsköpun og hugmyndaflæði í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Nánar >

Konur í útrásarhug hafið í annað sinn

Verkefnið Konur í útrásarhug fór af stað í annað sinn í síðustu viku með tíu þátttakendum. Fyrsti vinnufundurinn fór fram á Hótel Heklu. Verkefnið er samstarfsverkefni Útflutningsráðs og Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Því er ætlað að styðja við konur sem eru að stíga sín fyrstu skref í útflutningi.  Nánar >

Aðalfundur EBRD

Dagana 15. og 16. maí mun Evrópski þróunarbankinn (EBRD) halda aðalfund sinn í London. Aðalfundur EBRD er einhver fjölsóttasti og stærsti viðburður á hverju ári er varðar fjárfestingar í löndum Austur-Evrópu, Rússlandi og Mið-Asíu. Fundinn sækja helstu fjárfestar á svæðinu, alþjóðleg fyrirtæki, s.s. bankar, fjárfestar, ráðgjafafyrirtæki o.fl. auk háttsettra opinberra aðila frá löndum á starfssvæði bankans.  Nánar >

Frá hugmynd til markaðar (HH2) lokið á Suðurlandi

Verkefninu Frá hugmynd til markaðar (HH2) lauk nýverið á Suðurlandi. Síðasti vinnufundurinn fór fram á Hótel Heklu. Þátttakendur í verkefninu voru 22 frá 20 fyrirtækjum og aðilum í ferðaþjónustu.  Nánar >

Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér