2. tbl. 2009

Nýsköpunarþing - Nýsköpunarverðlaun 2009

Opin nýsköpun verður yfirskrift Nýsköpunarþings Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar og Útflutningsráðs sem verður haldið fimmtudaginn 12. mars nk. kl. 8.00–10.00 á Grand Hótel Reykjavík. Á Nýsköpunarþinginu verða veitt Nýsköpunarverðlaun fyrir árið 2009. Nánar >
Samfélagsábyrgð: frá sýn til framkvæmdar

Útflutningsráð Íslands og Eþikos bjóða upp á námskeið um innleiðingu samfélagsábyrgðar sem lið í því að byggja upp traust, orðstír og ábyrga samkeppnishæfni. Þessar áherslur hafa aldrei verið mikilvægari en nú. Námskeiðið verður haldið frá kl. 09.00-17.00 í Háskólanum í Reykjavík. Nánar >
Viðskiptasendinefnd til Færeyja

Dagana 27.-29. maí næstkomandi verður sjávarútvegssýningin Fish Expo Faroe haldin í Færeyjum. Útflutningsráð hefur hug á að tengja ferð viðskiptasendinefndar við þennan viðburð með áherslu á öflun upplýsinga, aukin tengsl og fundi með þarlendum fyrirtækjum. Nánar >

Rannsókn á viðhorfi til Íslands

Útflutningsráð Íslands og Ferðamálastofa hafa fengið ParX Viðskiptaráðgjöf IBM til að rannsaka viðhorf meðal almennings til Íslands í þremur löndum: Bretlandi, Þýskalandi og Danmörku en löndin eru meðal stærstu viðskiptamarkaða Íslands.
Nánar >

Sóknarfæri fyrir arkitekta

Útflutningsráð og félag sjálfstætt starfandi arkitekta (FSSA) stóðu fyrir vinnufundi félagsmanna föstudaginn 27. febrúar sl. Markmiðið með fundinum var að greina styrkleika og veikleika atvinnugreinarinnar og sjá út ný sóknartækifæri. Fundurinn gekk betur en menn höfðu þorað að vona og hefur verið ákveðið að setja á laggirnar undirbúningsnefnd arkitekta til að vinna áfram með þær tillögur sem fram komu á fundinum. 
Nánar >

Issues and Images - nýtt tölublað

Nýtt tölublað tímaritsins Issues and Images er komið út. Tímaritið er á ensku og hafa viðtökur verið mjög góðar á fyrri blöðum. Nánar >
Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér