1. tbl. 2009

Sjávarútvegssýningin Fish Expo Faroe í Þórshöfn, Færeyjum

Útflutningsráð Íslands undirbýr nú þátttöku fyrirtækja á sjávarútvegssýningunni Fish Expo Faroe 2009 sem fram fer í Þórshöfn, Færeyjum dagana 27.-29. maí nk. Sjávarútvegssýningar í Færeyjum eru íslenskum fyrirtækjum vel kunnar og hafa ætíð verið vel sóttar. Nánar >
Viðskiptasendinefnd til Japans

Útflutningsráð og Ferðamálastofa gangast fyrir Íslandskynningu í Tókýó mánudaginnn 2. mars í samvinnu við sendiráð Íslands í Tókýó og JATA – Japan Association of Travel Agents. Nánar >
Konur í útrásarhug!

Útflutningsráð Íslands og Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands bjóða á ný upp á verkefni sem ætlað er að styðja við fyrirtæki Brautargengiskvenna sem hyggja á útrás. Nánar >
Efling ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu

Á dögunum var haldinn tveggja daga vinnufundur austur á Flúðum þar sem 15 ferðaþjónustufyrirtæki af höfuðborgarsvæðinu komu saman og lærðu um vöruþróun. Þessi vinnufundur er liður í verkefni Útflutningsráðs, Hagvexti á heimaslóð (HH), sem er sniðið að þörfum fyrirtækja og hagsmunaðila í ferðaþjónustu með sérstaka áherslu á hagnýtt gildi fyrir alla þátttakendur. Nánar >
Viðskiptasendinefnd til Færeyja

Dagana 27.-29. maí næstkomandi verður sjávarútvegssýningin Fish Expo Faroe haldin í Færeyjum. Útflutningsráð hefur hug á að tengja ferð viðskiptasendinefndar við þennan viðburð með áherslu á öflun upplýsinga, aukin tengsl og fundi með þarlendum fyrirtækjum. Nánar >
Komdu í land – námskeið framundan

Nú hefur verkefnið Komdu í land hafið námskeiðaherferð hringinn í kringum landið. Verkefnið er samstarfsverkefni Útflutningsráðs, Ferðamálastofu og Cruise Iceland samtakanna um að Útflutningsráð standi fyrir fræðslu og ráðgjöf í hafnarbæjum sem eru meðlimir í Cruise Iceland samtökunum. Nánar >
Mikill áhugi á útflutningi hjá íslenskum fyrirtækjum

Viðskiptafulltrúar sem starfa við sendiráð Íslands víðsvegar um heim voru staddir hér á landi á dögunum í viku þar sem tíminn var notaður til að kynna sér nýjustu straumana í íslensku viðskiptalífi en megintilgangur heimsóknar þeirra var að hitta fulltrúa íslenskra fyrirtækja. Nánar >
Frá hugmynd til markaðar (HH2) hafið á Suðurlandi

Verkefnið Frá hugmynd til markaðar (HH2) hófst á Suðurlandi í síðustu viku. Þátttakendur eru 22 frá 20 fyrirtækjum og aðilum í ferðaþjónustu. Vinnufundir verkefnisins eru þrír og lýkur í mars. Verkefnið er sjálfstætt framhald verkefnisins Hagvöxtur á heimaslóð (HH). Nánar >
Upplýsingar um efnahagsástandið á einum stað

Stjórnvöld hafa sett á fót upplýsingamiðstöð vegna efnahagsástandsins á Íslandi. Forsætis- og utanríkisráðuneyti unnu að undirbúningi upplýsingamiðstöðvarinnar en fleiri ráðuneyti koma að efnisöflun og símaþjónustu. Markmið hennar er að einfalda aðgengi almennings að upplýsingum um hvað eina sem viðvíkur efnahagsástandinu. Nánar >
Útflutningsaukning og hagvöxtur - vinnufundur á söguslóðum

Fimmti fundur í hinu gamalreynda ÚH verkefni var haldinn í Búðardal í vikunni en Eiríksstaðir eru þátttakandi í verkefninu. ÚH fólk heimsótti m.a. Mjólkurbúið í Búðardal og kynntust hinni framsæknu ostagerð sem þar er stunduð; heimsóttu Leifssafn og fræddust um væringar á milli Dalamanna á Landnámsöld og landafundi sem af þeim hlutust.  Nánar >
Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér