|
3. tbl. 2010
Íslandsstofa
Stjórn Íslandsstofu ákvað á fundi sínum 5. ágúst sl. að ráða Jón Ásbergsson í starf framkvæmdastjóra, sjá frétt. Starfsfólk Íslandsstofu er 23 talsins og er skrifstofan í Húsi atvinnulífisins, Borgartúni 35. Starfsemin er óðum að komast í gang eftir sumarfrí starfsfólks og verða ný verkefni kynnt jafnóðum, ýmist með markpóstum eða Fréttaskoti. Næsta verkefni stjórnar verður að standa fyrir nýsköpunar- og stefnumótunarvinnu á haustmánuðum í þágu nýrrar Íslandsstofu. Nánar>
|
|
 |
Frá hugmynd til markaðar – HH2
Framhaldsverkefni fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á Reykjanesi
Íslandsstofa býður ferðaþjónustufyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu þátttöku í verkefninu Frá hugmynd til markaðar – HH2 sem er sjálfstætt framhald hins árangursríka og vinsæla verkefnis Hagvöxtur á heimaslóð (HH). Nánar> |
|
 |
Sýningar framundan
Íslandsstofa hefur skipulagt þátttöku í þremur sýningum í ágústmánuði og eru fulltrúar frá 23 fyrirtækjum á leið til Danmerkur, Noregs og Englands. Nánar > |
|
|
 |
|
Verkefnið Sjóður – staða mála
Brátt lýkur fyrsta hluta verkefnisins Sjóður sem er handleiðslu- og þróunarverkefni Íslandsstofu og Ferðaþjónustu bænda. Verkefnið býður aðilum Ferðaþjónustu bænda upp á tækifæri til að fá persónulega ráðgjöf um hvernig hægt sé að:
• nýta enn betur þá þjónustu sem þegar er til staðar
• greina og þróa nýja möguleika í þjónustu við ferðamenn Nánar >
|
|
 |
You Are In Control
Stafræn framtíð: Tækifæri skapandi greina
Alþjóðleg ráðstefna, You Are In Control, verður haldin í fjórða sinn í Reykjavík dagana 1. og 2. október næstkomandi þar sem rýnt verður í þróun og tækifæri í stafrænum viðskiptamódelum. Stafræn framtíð felur í sér nýsköpun og atvinnutækifæri. Þau sem taka þátt í umræðunni um hvernig best sé að fóta sig í þessum heimi eru líklegri til að vera í fararbroddi þegar tækifærin birtast. Nánar > |
|
 |
|
|
|
|
|