Ef þú sérð ekki póstinn smelltu hér


2. tbl. 2010

Sumarleyfi starfsfólks
Starfsfólk Íslandsstofu verður í sumarleyfi dagana 12. júlí til 2. ágúst. Svarað verður í símann þessar þrjár vikur og verður skrifstofan opin með lágmarksþjónustu.

Vegna verkefna framundan er bent á starfsfólk á vefsíðunni.

Viðskiptasendinefnd til Nýju-Delí í september
Íslandsstofa kannar áhuga fyrirtækja á þátttöku í viðskiptasendinefnd til Nýju-Delí á Indlandi í haust. Samtök indverska iðnaðarins, Confederation of Indian Industry, standa fyrir viðamikilli ráðstefnu og sýningu dagana 1.-3. september, með áherslu á endurnýjanlega orku, uppbyggingu innviða, umhverfistækni, menntun, upplýsingatækni, rannsóknir og þróun, lyfjaiðnað, ferðaþjónustu og umhverfisvæna framleiðslutækni. Nánar>
Markaðsátakið Inspired komið vel áleiðis – góður stígandi í komum ferðamanna til Íslands
Markaðsátakið Inspired by Iceland í samvinnu ferðaþjónustufyrirtækja, ríkisins og Reykjavíkurborgar er komið vel áleiðis.
Þjóðarátak um tónlistarmyndband á vefnum og útitónleikar í Hljómsskálagarðinum, sem sendir voru út á Internetinu, hafa verið mest áberandi hérlendis en nú er að ljúka birtingum á auglýsingum átaksins í vefmiðlum, dagblöðum, neðanjarðarlestum, strætisvögnum og á stórum útiskiltum í Bretlandi, Þýskalandi, Frakklandi, Danmörku og Noregi.  Nánar >

Öflug Íslandskynning á EXPO í Shanghai í september 
Dagur Íslands á heimssýningunni EXPO í Shanghai verður laugardaginn 11. september nk. og mun forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, þá heimsækja íslenska sýningarsvæðið. Verður forseti boðinn velkominn af háttsettum fulltrúum kínverskra stjórnvalda og gefst þar gott tækifæri til að kynna það sem Ísland hefur fram að færa á sýningunni.  Nánar >

Fjárfestingarþing við Svartahafið
Dagana 16.-19 september er haldið fjárfestingarþingið Forum Kuban í Sochi við Svartahafið í Rússlandi www.forumkuban.com.
Íslandsstofa tekur þátt í þinginu í samvinnu við utanríkisráðuneytið og sendiráð Íslands í Moskvu og er þátttaka er opin fyrir fyrirtæki frá Íslandi.  Nánar >
Ferðaþjónusta - fundaröð í Kanada
Íslandsstofa og Grænlenska ferðamálaráðið vilja kanna áhuga fyrirtækja á að taka þátt í röð funda í Kanada. Áformað er að taka viku í október til fundanna en nákvæm dagsetning verður ákveðin í samráði við þátttakendur. Farið verður í borgirnar Halifax, Toronto, Winnipeg og Vancouver. Jafnvel kæmi til greina að bæta Seattle við.  Nánar >

íslandsstofa · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
islandsstofa@islandsstofa.is · www.islandsstofa.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér