|
7. tbl. 2010
Íslandsstofa
Alþingi samþykkti í lok aprílmánaðar lög um Íslandsstofu og hefur utanríkisráðherra boðað til stofnfundar þriðjudaginn 29. júní. Með tilkomu Íslandsstofu verður öll kynning á viðskiptalegum hagsmunum Íslands komin undir einn hatt, en í lögunum segir að markmið þeirra sé að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins. Nánar >
|
|
 |
Inspired by Iceland
Fimmtudagskvöldið 1. júlí fer einn af hápunktum Inspired by Iceland átaksins fram með tónleikunum 'Iceland Inspires' að Hamragörðum undir Eyjafjöllum. 'Iceland Inspires' tónleikarnir eru þriggja tíma tónlistarveisla sem verður einnig í beinni útsendingu á vefsíðu átaksins www.inspiredbyiceland.com. Nánar > |
|
 |
ÚH-verkefnið hefst í haust
Átta fyrirtæki verða valin til þátttöku
Markaðsverkefnið Útflutningsaukning og hagvöxtur, ÚH, verður haldið í 21. sinn í haust. Það er ætlað fyrirtækjum sem hafa áhuga á að hefja útflutning, auka útflutning eða treysta tök sín á markaðssetningu erlendis. Að vanda verða átta fyrirtæki valin til þátttöku. Nánar > |
|
|
 |
Ísland í heiðurssæti
Matvælasýning í Sviss 2011
Útflutningsráð kannar áhuga fyrirtækja á þátttöku í hótel- og veitingahúsasýningunni IGEHO sem haldin verður í Basel, Sviss, 19.–23. nóvember 2011. Ísland mun þar verða í heiðurssæti og sett verður upp stór Íslandseyja á besta stað á sýningarsvæðinu þar sem matvæli, s.s. kjöt, fiskur, mjólkur- og drykkjarvörur verða kynnt, auk ferðaþjónustu. Nánar > |
|
 |
Sjávarútvegssýningin í Kína
Undirbúningur er hafinn fyrir sjávarútvegssýninguna China Fisheries & Seafood Expo sem verður haldin 2.–4. nóvember í Dalían. Þetta er í 15. sinn sem sýningin er haldin og er ein stærsta sýning sinnar tegundar í Asíu og fer stækkandi milli ára. Nánar > |
|
 |
Tungumálastofnun Vigdísar Finnbogadóttur
Hýsum „gersemar heimsins“
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur hefur sett sér það metnaðarfulla markmið að stórefla starfsemi sína með því að setja á laggirnar alþjóðlega tungumálamiðstöð þar sem leikir og lærðir geta fræðst á lifandi og skapandi hátt um erlend tungumál og skyggnst inn í ólíka menningarheima. Nánar > |
|
 |
|
You are in Control
Skapandi í stafrænum heimi - Högnumst á samvinnu
Alþjóðleg ráðstefna, You Are In Control, verður haldin í fjórða sinn í Reykjavík dagana 1. og 2. október næstkomandi. Rýnt verður í þróun og tækifæri í stafrænum viðskiptamódelum ásamt því að skoða samlegðaráhrif mismunandi listforma. Nánar >
|
|
 |
Nýtt tölublað Issues and Images
Annað tölublað tímaritsins Issues and Images er komið út. Tímaritið er á ensku og er gefið út þrisvar á ári. Markmiðið með útgáfu ritsins er varpa ljósi á menn og málefni og veita þannig innsýn í íslenskt samfélag. Í blaðinu er að finna greinar af fjölbreyttum toga; fjallað er um ýmis málefni, fólk í viðskiptum eða stjórnmálum, sagt frá áhugaverðum stöðum á landinu og sýndar nærmyndir af listamönnum, tónlistar-, athafna- eða íþróttafólki. Nánar > |
|
 |