Ef þú sérð ekki póstinn smelltu hér

6. tbl. 2010

Að velja réttan markað og samstarfsaðila á markaði
Útflutningsráð Íslands og Dansk Industri International Business Development standa fyrir vinnufundi þriðjudaginn 18. maí kl. 8.45–16.00 á Hilton Reykjavík Nordica þar sem viðfangsefnið er val á markaði og val á samstarfsaðila á markaði. Nánar >  

Viðskiptatækifæri í BRIK löndum
Útflutningsráð og Dansk Industri International Business Development (DIBD) halda morgunverðarfund um möguleg viðskipti og viðskiptatækifæri í BRIK löndum. Fundurinn verður haldinn í húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 6. hæð, miðvikudaginn 19. maí kl. 9.00–12.00. Nánar >
Guðmundur Eiríksson, sendiherra til viðtals  
Guðmundur Eiríksson, sendiherra Íslands í Nýju-Delí, verður til viðtals eftir hádegi 19. maí.
Fundirnir eru ætlaðir þeim sem vilja ræða viðskiptamöguleika, menningartengd verkefni og önnur hagsmunamál í umdæmi sendiráðsins, þar sem utanríkisþjónustan getur orðið að liði. Nánar >
Evrópska fyrirtækjavikan 2010: Kynningarfundur um stuðningsumhverfi nýsköpunar  
Stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi verður í sviðsljósinu á kynningarfundi á Grand hótel 26. maí kl. 9-12. Hátt í tuttugu aðilar munu kynna þjónustu sína við frumkvöðla og fyrirtæki, en markmið kynningarinnar er að veita heildaryfirsýn og skapa umræðu um stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi. Nánar >
Þjóðarátak um að bjóða fólk velkomið
Á ferðamálaþingi nýverið undirrituðu Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs samning við Icelandair, Reykjavíkurborg, Iceland Express, Útflutningsráð Íslands og Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) um markaðsátak í ferðaþjónustu í maí og júní 2010 vegna áhrifa eldgossins í Eyjafjallajökli á árinu 2010 á atvinnugreinina. Nánar >
Góð þátttaka frá Íslandi
Fimm íslensk fyrirtæki eru þátttakendur, ásamt Útflutningsráði og Fjárfestingarstofunni, á gagnaversráðstefnunni Uptime Symposium 2010 sem hefst í dag í New York, fyrirtækin sem um ræðir eru Míla, Glacier Guard, Greenstone, Nýherji og Farice   Nánar >

Ísland heiðursgestur á matvælasýningu í Sviss 
Íslandi býðst að vera í heiðurssæti á matvælasýningu sem ber heitið IGEHO og haldin verður 19.-23. nóvember 2011 í Basil í Sviss. Sýningin er mjög stór og skiptist niður á nokkra geira. Á sýningunni yrði athyglinni beint að Íslandi og í boði er 2-400 fermetra eyja á besta stað í matar- og drykkjarhöllinni. Nánar >

Made in Iceland verkefnið í Kína  
Í tilefni af því að prentaði bæklingurinn sem inniheldur fyrirtækin 44 sem eru í Made in Iceland (MII) verkefninu er komin út á kínversku hefur verið ákveðið að boða til fundar þriðjudaginn 18. maí kl. 14:00–14:45 í Borgartúni 35, 6 hæð.  Nánar >
Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér