|
5. tbl. 2010
Stjórnendur leiðandi fyrirtækja á Útflutningsþingi 2010
Íslenskt atvinnulíf efnir til Útflutningsþings fimmtudaginn 6. maí á Hilton Reykjavík Nordica hótel, kl. 8:30-13:00. Þar munu stjórnendur leiðandi íslenskra útflutningsfyrirtækja miðla af reynslu sinni og rýna í framtíðina. Þátttakendum gefst kostur á að ræða við hóp reyndra stjórnenda undir lok þingsins en formlegri dagskrá lýkur kl. 12:00 með léttum hádegisverði og tengslamyndun til kl. 13:00. Nánar >
Dagskrá og skráning á vefsíðunni
|
|
 |
Nýr viðskiptafulltrúi í Moskvu - Góð kynning á rússneska markaðnum
Fjörtíu manns mættu á kynningarfund í morgun þar sem viðskiptafulltrúi sendiráðs Íslands í Moskvu, Ilona Vasilieva, kynnti viðskiptatækifæri í Rússlandi ásamt því að ræða efnahagsástand, siði, venjur og ýmislegt fleira gagnlegt. Nánar > |
|
 |
Ráðgjöf um Ítalíumarkað
Ítalía er vaxandi markaður og felur í sér ýmsa möguleika fyrir Íslendinga. Antony Oldani býður íslenskum fyrirtækjum ráðgjöf um sókn á ítalskan markað en hann hefur síðustu misseri átt farsælt samstarf við Fjárfestingarstofuna og kynnt fyrir Ítölum fjárfestingartækifæri á Íslandi. Nánar > |
|
 |
Sjávarútvegssýningin í Brussel
Það voru 26 fyrirtæki sem tóku þátt á sameiginlegum bás Útflutningsráðs á sjávarútvegssýningunni í Brussel sem stóð yfir dagana 27.-29. apríl. Allir sýnendur voru sammála um að sýningin hafi verið góð og að heimsóknir til fyrirtækja hafi verið markvissar. Nánar > |
|
|
 |