Ef þú sérð ekki póstinn smelltu hér

4. tbl. 2010

Útflutningsþing 2010
Sóknarfæri í útflutningi
Hilton Reykjavík Nordica, fimmtudaginn 6. maí 2010, kl. 8.30-13.00.
Hvernig má efla útflutning og sókn á nýja markaði? Á hvaða hátt styður fjármálamarkaður við útflutning og gjaldeyrissköpun? Hvaða stuðningur er í boði fyrir íslensk útflutningsfyrirtæki og hvernig má auka samkeppnishæfni þeirra?  Nánar >  

Útskrift í verkefninu Útflutningsaukning og hagvöxtur:
Stjörnu-Oddi og Belgingur verðlaunuð fyrir bestu markaðsáætlanirnar
Maarit Kaipainen frá fyrirtækinu Star-Oddi og María Edwardsdóttir frá Belgingi voru verðlaunaðar í dag fyrir bestu markaðsáætlanirnar við útskrift í verkefninu Útflutningsaukning og hagvöxtur (ÚH) sem Útflutningsráð Íslands stendur að í samvinnu við Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og Félag kvenna í atvinnurekstri.  Nánar >
Leitar hugurinn til Japan?  
Viðskiptafulltrúi sendiráðs Íslands í Tókýó í heimsókn 23. apríl nk.
Akiko Hasegawa, viðskiptafulltrúi sendiráðsins í Japan, mun hitta fulltrúa fyrirtækja sem vilja leita markaðsráðgjafar á umdæmissvæðum sendiráðsins.
Fundirnir verða haldnir á skrifstofu Útflutningsráðs Íslands, Borgartúni 35.  Nánar >
Viðskiptatækifæri í Rússlandi   
Viðskiptafulltrúi sendiráðs Íslands í Moskvu í heimsókn 28. apríl nk.
Viðtöl og morgunverðarfundur
Ilona Vasilieva, viðskiptafulltrúi sendiráðsins í Rússlandi, mun hitta fulltrúa fyrirtækja sem vilja leita markaðsráðgjafar á umdæmissvæðum sendiráðsins. Morgunverðarfundur um helstu viðskiptatækifærin fyrir íslensk fyrirtæki í Rússlandi verður haldinn sama dag kl. 08.45-09.30 á 6. hæð í Borgartúni 35.  Nánar >
Sjávarútvegssýningar í Brussel 2010 
Útflutningsráð Íslands skipuleggur þátttöku íslenskra fyrirtækja á European Seafood Exposition og Seafood Processing Europe sem haldnar verða í Brussel 27.–29. apríl nk., www.euroseafood.com. Í ár eru fulltrúar frá 26 fyrirtækjum þátttakendur á sýningunum tveimur. Nánar >
Öflug Íslandskynning á EXPO  
Dagur Íslands á heimssýningunni EXPO í Sjanghæ verður laugardagurinn 11. september nk. og mun forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, þá heimsækja íslenska sýningarsvæðið. Verður forseti boðinn velkominn af háttsettum fulltrúum kínverskra stjórnvalda og gefst þar gott tækifæri til að kynna það sem Ísland hefur fram að færa á sýningunni.  Nánar >

Aðalfundur Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD) í Zagreb, Króatíu
Útflutningsráð Íslands vekur athygli á aðalfundi EBRD, sem er einn fjölsóttasti og stærsti viðburður á hverju ári er varðar fjárfestingar í löndum Austur-Evrópu, Rússlandi og Mið-Asíu. Yfirskrift fundarins er „Building Sustainable Growth“.  Nánar >

Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér