Ef þú sérð ekki póstinn smelltu hér

3. tbl. 2010

Nýsköpunarþing 2010
Rannís, Nýsköpunarmiðstöð og Útflutningsráð halda sitt árlega Nýsköpunarþing miðvikudaginn 24. mars á Grand hótel, kl. 8.15-10.00. Yfirskrift Nýsköpunarþings er Samvinna í nýsköpun og verða Nýsköpunarverðlaun ársins 2010 afhent að loknum erindum og tónlistaratriði. Nánar >  

Orkuráðstefna í tilefni af viku endurnýjanlegrar orku
Í tilefni af viku endurnýjanlegrar orku í Evrópu heldur Nýsköpunarmiðstöð Íslands í samstarfi við Enterprise Europe Network fund fimmtudaginn 25. mars nk. kl. 13.00-15.00 á Grand hótel undir yfirskriftinni Framlag Íslands til þróunar í endurnýjanlegri orku. Nánar >
Sendiherrar Íslands í Þórshöfn, Vín og Moskvu til viðtals
Albert Jónsson, Stefán Skjaldarson og Benedikt Ásgeirsson sendiherrar Íslands í Færeyjum, Austurríki og Rússlandi verða til viðtals 24., 26. og 31. mars nk.
Fundirnir eru ætlaðir þeim sem vilja ræða viðskiptamöguleika, menningartengd verkefni og önnur hagsmunamál í umdæmum sendiráðanna.  Nánar >
Aðalfundur Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD) í Zagreb, Króatíu
Útflutningsráð Íslands vekur athygli á aðalfundi EBRD, sem er einn fjölsóttasti og stærsti viðburður á hverju ári er varðar fjárfestingar í löndum Austur-Evrópu, Rússlandi og Mið-Asíu. Yfirskrift fundarins er „Building Sustainable Growth“.  Nánar >
Ferðaþjónusta til Kína 2010
Fyrirtækjum í ferðaþjónustu býðst nú einstakt tækifæri til að kynna Ísland sem áfangastað fyrir kínverska ferðamenn. Útflutningsráð Íslands undirbýr ferð viðskiptasendinefndar ferðaþjónustufyrirtækja til Kína, dagana 15.–22. júní. Ferðin verður farin í tengslum við Heimssýninguna Expo 2010 í Sjanghæ.  Nánar >
Green Ventures 2010
Útflutningsráð Íslands vekur athygli á fyrirtækjastefnumótinu „Green Ventures 2010“ sem haldið er af Viðskiptaráði Potsdam, Þýskalandi dagana 16.-18. júní nk. Nánar >
Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér