|
2. tbl. 2010
Kynning á norrænu markaðsverkefni í umhverfistækni
Útflutningsráð og Samtök iðnaðarins standa fyrir morgunverðarfundi miðvikudaginn 3. mars
kl. 8.45–10.00 í Borgartúni 35, 6 hæð.
NETS (Nordic Technical Environmental Solutions) verkefnið er sameiginlegur kynningarvettvangur fyrir umhverfistæknifyrirtæki á Norðurlöndum og er því ætlað að ná fram samlegðaráhrifum norrænna fyrirtækja og stofnana með sérstaka áherslu á lítil og meðalstór fyrirtæki. Nánar >
|
|
 |
|
Íslandsdagur í Mílanó
Íslandsdagur fer fram í Mílanó í dag, föstudag, að tilstuðlan borgarstjórans, Letizia Moratti. Af því tilefni er sendinefnd íslenskra fyrirtækja stödd í Mílanó, undir forystu Kristjáns L. Möller, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, en skipulagning ferðarinnar er í höndum utanríkisráðuneytisins og Útflutningsráðs Íslands. Fyrirtæki og samtök sem taka þátt í Íslandsdeginum eru 23 talsins. Nánar >
|
|
 |
|
Viltu ná meiri árangri á netinu?
Námskeið í markaðssetningu á netinu hefur nú verið haldið á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og tvisvar á höfuðborgarsvæðinu og fengið afar góðar viðtökur. Á námskeiðinu er farið yfir helstu samskiptaleiðir netsins á hagnýtan hátt og hvernig samskiptaleiðir netsins geta skapað miklar tekjur. Markmiðið er að þátttakendur öðlist þekkingu sem nýtist þeim strax í starfi. Nánar >
|
|
 |
|
Ísland nýr áfangastaður fyrir Indverja
Ísland vakti mikla athygli sem nýr áfangastaður fyrir Indverja á ferðasýningunni Satte í Nýju-Delí í janúarlok. Fjögur íslensk fyrirtæki í ferðaþjónustu tóku þátt í sýningunni undir hatti Útflutningsráðs Íslands, í samvinnu við Ferðamálastofu. Satte er ein stærsta sýning á sviði ferðamála á Indlandi og er þetta í fyrsta sinn sem Útflutningsráð skipuleggur þátttöku Íslendinga í henni. Nánar >
|
|
 |
|
Samstarfsverkefni Norðurlandanna fyrir umhverfistæknifyrirtæki
Nordic Technical Environmental Solutions (NETS) verkefnið er sameiginlegur kynningarvettvangur fyrir umhverfistæknifyrirtæki á Norðurlöndum og er því ætlað að ná fram samlegðaráhrifum norrænna fyrirtækja og stofnana með sérstaka áherslu á lítil og meðalstór fyrirtæki. Í tengslum við verkefnið verður haldin ráðstefna og sýning í Silicon Valley í Kaliforníu þann 27. og 28. apríl nk. sem ber yfirskriftina Nordic Green II. Nánar >
|
|
 |
|
Útskrift 14 þátttakenda frá hugbúnaðarfyrirtækjum
Útflutningsráð, í samstarfi við Samtök upplýsingartæknifyrirtækja (SUT), stóð fyrir verkefni sem sniðið var að því að undirbúa og aðstoða fyrirtæki í þessum atvinnugeira við að markaðssetja tilbúna vöru á markað erlendis. Alls tóku 14 fulltrúar frá níu fyrirtækjum þátt í verkefninu með tólf mismunandi vörur. Nánar >
|
|
 |
|
Útskrift 16 ferðaþjónustufyrirtækja
Frá hugmynd til markaðar (HH2) verkefni ferðaþjónustuaðila á höfuðborgarsvæðinu er sjálfstætt framhald verkefnisins Hagvöxtur á heimaslóð (HH1) lauk á dögunum þar sem 16 ferðaþjónustufyrirtæki voru útskrifuð. Tilgangur verkefnisins er að auka markaðsvitund þátttakenda varðandi sölu, kynningu og markaðssetningu. Nánar >
|
|
 |
|
Íslensk hönnun og arkitektúr í kastljósinu í Kaupmannahöfn
Íslensk samtímahönnun – húsgögn, vöruhönnun og arkitekúr nefnist sýning sem opnuð hefur verið í hinni virtu hönnunarmiðstöð Dana í Kaupmannahöfn, Danmarks Design Center, og standa mun yfir næstu tvo mánuði. Sýningin er samstarfsverkefni Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Danmarks Design Center og er styrkt af Útflutningsráði Íslands, utanríkisráðuneyti, iðnaðarráðuneyti, menntamálaráðuneyti, Icelandair, Visit Reykjavík og sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn. Nánar >
|
|
 |