|
10. tbl. 2009
Styrkur í stað jólakorta
Sendum okkar bestu jóla- og nýárskveðjur með kærri þökk fyrir samstarfið á árinu.
-Starfsfólk Útflutningsráðs Íslands.
Forvarnarsamtökin Blátt áfram hlutu styrk frá Útflutningsráði nú í ár. Blátt áfram eru sjálfstæð félagasamtök og er tilgangur samtakanna að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi. Nánar >
|
|
 |
|
Viðskiptafundir og sjávarútvegssýning
Sjávarútvegssýningin Fish International 2010 verður haldin í Bremen dagana 21.-23. febrúar nk. Á sýningunni í ár býðst fyrirtækjum í fyrsta skipti aðstoð við að finna mögulega samstarfsaðila og skipuleggja viðskiptafundi fyrirfram. Nánar >
|
|
 |
|
Fundir með sendiherrum vel nýttir
Mikill fjöldi einstaklinga og fyrirtækja nýtti sér tækifærið að ræða við verðandi sendiherra Íslands í Kína, Kristín Árnadóttir, var til viðtals 9.-11. desember sl. Upphaflega var boðið upp á viðtöl í einn dag en þegar sá dagur var uppbókaður á u.þ.b. fjórum klukkustundum var ákveðið að bjóða upp á fleiri daga sem voru vel nýttir. Nánar >
|
|
 |
|
Frábærar undirtekir hjá ráðstefnugestum
Ráðstefnan Vefurinn skapar verðmæti - Aukin tækifæri til útflutnings var haldin 1. desember á Hilton Reykjavík Nordica þar sem fjallað var um sölu á internetinu. Mæting fór fram úr björtustu vonum en um 500 manns mættu á ráðstefnuna og fræddust um netverslun og þær leiðir sem reynst hafa vel. Nánar >
|
|
 |
|
Mikill áhugi á viðskiptum við Indland
Viðskipta- og ferðamálafulltrúar Indlands komu hingað til lands fyrir stuttu og hittu fjölmörg fyrirtæki ásamt því að kynna viðskiptatækifæri í ferðaþjónustu, orkumálum, upplýsinga- og símatækni. Mikill áhugi er til staðar hjá ferðamálafyrirtækjum. Nánar >
|
|
 |
|
Útstím-verkefnið sívinsælt
Nýtt Útstím verkefni er hafið þar sem átta fyrirtæki njóta aðstoðar við að koma sér og sinni vöru á framfæri á Norðurlöndunum og eitt fyrirtæki í Bandaríkjunum. Verkefnið er nú hluti af daglegri handleiðslu Útflutningsráðs og er fyrir fyrirtæki sem eru talin eru tilbúin fyrir markaðssetningu á erlenda markaði með sína vöru eða þjónustu. Nánar >
|
|
 |
|
Góð þátttaka í verkefni með hugbúnaðarfyrirtækjum
Útflutningsráð Íslands og Samtök upplýsingatæknifyrirtækja (SUT) hafa unnið saman í handleiðsluverkefni fyrir meðlimi SUT. Tilgangur verkefnisins er að undirbúa og aðstoða hugbúnaðarfyrirtæki við að markaðssetja tilbúna vöru á markað erlendis. Verkefnið byggist á stöðumati, námskeiðum og ráðgjöf á markaði. Nánar >
|
|
|
 |