|
9. tbl. 2009
Vefurinn skapar verðmæti - Aukin tækifæri til útflutnings
Ráðstefna haldin þriðjudaginn 1. desember á Hilton Reykjavík Nordica kl. 9.00-13.00.
Á ráðstefnunni verður fjallað um sölu á internetinu og munu íslensk fyrirtæki kynna starfsemi sína. Aðalfyrirlesari verður Rob Snell frá Bandaríkjunum, höfundur bókarinnar Yahoo Store! For
Dummies. Rob er aðaleigandi Snell Brothers, ráðgjafarfyrirtækis sem sérhæfir sig í sölu á netinu. Nánar >
|
|
 |
|
Viðskiptasendinefndir fyrri hluta árs 2010
Nýtt ár tekur á móti þér með nýjum tækifærum. Útflutningsráð Íslands undirbýr nú ferðir viðskiptasendinefnda í janúar og febrúar 2010. Þeir sem hafa áhuga á að slást í för eru beðnir um að tilkynna þátttöku sem fyrst.. Nánar >
|
|
 |
|
Íslensk fyrirtæki funda með sendiherrum Íslands
Á síðustu vikum hafa sendiherrar Íslands í London, Delí, Vín, París, Helsinki og verðandi sendiherra í Kaupmannahöfn, boðið upp á viðtöl við einstaklinga og fyrirtæki og nýttu fjölmargir það tækifæri. Nánar >
|
|
 |
|
Íslenski hesturinn vinsæll á Equine Affaire
Equine Affaire er ein stærsta hestasýning sem haldin er ár hvert í Bandaríkjunum. Í nóvember fer hún fram í borginni Springfield í Massachusetts og nær sýningarsvæðið yfir fimm stórar hallir auk útisvæðis. Á sýningu sem þessari eru hin ýmsu hestakyn kynnt, haldnar kennslusýningar og fyrirlestrar, auk þess sem boðið er upp á svokölluð „Gala-show“ á kvöldin. Nánar >
|
|
 |
|
Útherji - nýtt tölublað
Fréttablað Útflutningsráðs er nýkomið út og hefur verið dreift til áskrifenda. Efni blaðsins er fjölbreytt að venju og má nefna m.a.; hönnun, tölvuleiki, fuglaskoðun, fjárfestingarráðstefnu fundi, sýningar, ráðgjöf og fræðslu. Nánar >
|
|
 |
|
Mikill áhugi á hjólreiðaferðamennsku á Íslandi
Málin voru reifuð á ráðstefnu sem Útflutningsráð og Ferðamálastofa gengust fyrir á dögunum um hjólreiðaferðir og möguleika í ferðaþjónustu hér á landi. Útflutningsráð mun starfa áfram að verkefnum til uppbyggingar fyrir þennan ákveðna markhóp og verður í framhaldinu boðað til stefnumótunarfundar sem auglýstur verður síðar. Nánar >
|
|
 |
|
Framhaldsnámskeið fyrir ferðaþjónustufyrirtæki 
Frá hugmynd til markaðar - framhaldsnámskeið fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á Höfuðborgarsvæðinu - hófst nú í nóvember og taka 16 fyrirtæki þátt í því. Verkefnið Frá hugmynd til markaðar, HH2, er sérstaklega lagað að þörfum lítilla og meðalstórra fyrirtækja og hagsmunaaðila í ferðaþjónustu, með áherslu á samstarf innan og milli svæða. Nánar >
|
|
|
 |