Ef þú sérð ekki póstinn smelltu hér

7. tbl. 2009

Viðskiptasendinefndir á næstunni

Viðskiptasendinefndir opna íslenskum fyrirtækjum dyr að nýjum mörkuðum og gegna mikilvægu hlutverki í sókn íslenskra fyrirtækja á erlenda markaði. Í undirbúningi eru ferðir til Finnlands, Færeyja, Bandaríkjanna, Spánar og Chile. Nánar >

Sendinefnd orkufyrirtækja til Washington

Útflutningsráð Íslands kannar áhuga á þátttöku í fjölþjóðlegri sendinefnd orkufyrirtækja til Washington dagana 1.-5. nóvember nk. Tilgangur ferðarinnar er að hitta fulltrúa Alþjóðabankans, Þróunarbanka Ameríku og Þróunarbanka Asíu.  Nánar >
You are in Control ráðstefnan – 50% afsláttur til miðnættis 1. september

Alþjóðleg ráðstefna, You are in Control, verður haldin í þriðja sinn í Reykjavík dagana 23. og 24. september næstkomandi. Til 1. september er boðið upp á 50% afslátt af ráðstefnugjaldi á 12.000 krónur. Rýnt verður í þróun og tækifæri í stafrænum viðskiptamódelum ásamt því að skoða samlegðaráhrif mismunandi listforma og áhrif á listsköpun. Nánar >
Ísland vinsælt meðal fuglaskoðara

Dagana 21.-23. ágúst fór fram hátíðin The British Birdwatching Fair eða Birdfair við Rutland Water í Northamptonskíri á Englandi. Hátíðin er þekkt sem nokkurs konar Glastonbury hátíð fuglaskoðara en fólk streymir að hvaðanæva úr heiminum til að taka þátt. Talið er að þetta árið hafi vel yfir 20.000 manns mætt þá þrjá daga sem hátíðin stóð yfir. Nánar >
Markaðshópur ferðaþjónustufyrirtækja

Útflutningsráð Íslands, Ferðamálastofa og Samtök ferðaþjónustunnar hafa ákveðið að efna til markvissrar kynningar á íslenskri ferðaþjónustu á næstu mánuðum. Meðal annars verður stofnaður sérstakur markaðshópur ferðaþjónustufyrirtækja sem mun kynna þjónustu sína á amk. fimm völdum mörkuðum í Evrópu. Nánar >
Made in Iceland

Um sextíu manns sóttu fund sem haldinn var miðvikudaginn 19. ágúst sl. Tilefni fundarins var kynning á stöðu verkefnisins Made in Iceland sem er kynningarátak á íslenskum vörum og þjónustu í Kína.. Nánar >
World Fishing Vigo 2009

Útflutningsráð Íslands skipuleggur þátttöku sjö fyrirtækja á fiskveiðisýningunni World Fishing sem haldin verður í Vigo á Spáni dagana 16.-19. september nk. Fyrirtækin sem um ræðir eru Neptunus, Naust Marine, 3s Technical Services, Trackwell, Casamar, Seigla, og Slurry Ice Systems. Nánar >
World Seafood Moscow 2009

Það eru þrjú fyrirtæki sem verða á aðstöðu Útflutningsráðs á World Seafood Moscow 2009, þau eru Marel, Eimskip og Oscar´s Fish. Nánar >
ÚH 20 hefst í október

Markaðsverkefnið Útflutningsaukning og hagvöxtur, ÚH, verður haldið í tuttugasta sinn í haust. Það er ætlað fyrirtækjum sem hafa áhuga á að hefja útflutning, auka útflutning eða treysta tök sín á markaðssetningu erlendis. Að vanda verða átta til tíu fyrirtæki valin til þátttöku. Nánar >
Bókasýning í Gautaborg 

Útflutningsráð Íslands, Bókmenntasjóður, Sögueyjan Ísland og Félag bókaútgefenda standa sameiginlega að íslenskum bás á Göteborg Book Fair sem fram fer dagana 24.-27. september  Nánar >
Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér