Ef þú sérð ekki póstinn smelltu hér

6. tbl. 2009

Skráning í sendinefnd til Póllands er til 15. ágúst

Útflutningsráð í samvinnu við sendiráð Íslands í Berlín skipuleggur nú viðskiptasendinefnd til Póllands 6.-9. október. Farið verður til tveggja borga í sömu ferð og þannig opnað fyrir fleiri möguleika á mismunandi markaðssvæðum. Nánar >

Viðskiptatækifæri í Kína

Fundur um „Made in Iceland“ kynningarátak á íslenskum vörum og þjónustu í Kína verður haldinn þriðjudaginn 18. ágúst kl. 16.30-17.30 á Grand hótel. Nánar >

Áhugaverðir viðburðir

Útflutningsráð kannar áhuga fyrirtækja á eftirtöldum viðburðum:
Faroexpo í Runavík Færeyjum 19.-22. október nk. Viðskiptamót fyrirtækja í sjávariðnaði.
Árlegur fundur World Bank, Inter-American Bank og Asian Bank of Development í Washington 1.-5. nóvember nk.
World Future Energy Summit í Abu Dhabi 18.-21. janúar 2010,
Food & Bev Tech 2010, 29.-31. október 2010 í Mumbai á Indlandi. Nánar >

ÚH 20 hefst í október

Markaðsverkefnið Útflutningsaukning og hagvöxtur, ÚH, verður haldið í tuttugasta sinn í haust. Það er ætlað fyrirtækjum sem hafa áhuga á að hefja útflutning, auka útflutning eða treysta tök sín á markaðssetningu erlendis. Að vanda verða átta til tíu fyrirtæki valin til þátttöku. Nánar >

Fjárfestingarþing í Sochi 17.-20. september

Dagana 17.-20. september er haldið fjárfestingarþingið Forum Kuban í Sochi við Svartahafið í Rússlandi. Útflutningsráð Íslands áformar þátttöku í þinginu í samvinnu við sendiráðið í Moskvu og er þátttaka er opin fyrir fyrirtæki frá Íslandi. Nánar >

You are in Control ráðstefnan – 50% afsláttur til 1. september

Alþjóðleg ráðstefna, You are in Control, verður haldin í þriðja sinn í Reykjavík dagana 23. og 24. september næstkomandi. Til 1. september er boðið upp á 50% afslátt af ráðstefnugjaldi á 12.000 krónur. Rýnt verður í þróun og tækifæri í stafrænum viðskiptamódelum ásamt því að skoða samlegðaráhrif mismunandi listforma og áhrif á listsköpun. Nánar >

Heimsmeistaramót íslenska hestsins

Útflutningsráð Íslands skipulagði sameiginlegt sýningarsvæði fyrirtækja á heimsmeistaramóti íslenska hestsins dagana 3.-9.ágúst. Fyrirtækin sem um ræðir eru Eiðfaxi, Glófi, Hestatorgið, Landsmót (Landsamband Hestamanna), Hestheimar, Kálfholt hestaferðir, Prímex, Matís og Icesaddles. Nánar >

Góðar viðtökur á íslenskri hönnun 

Farmersmarket og Emami sýndu sumarlínu sína fyrir 2010 á CPH Vision, Öksnehallen í Kaupmannahöfn en sýningin er partur af Copenhagen Fashion Week. Sýningin fór fram dagana 6.-9. ágúst. 
 Nánar >

Issues and Images - nýtt tölublað að koma út

Í nýju tölublað tímaritsins Issues and Images er sjónum beint að málefnum líðandi stundar og fólki úr ýmsum áttum. Þar má nefna áhugaverða staði, tónlist, tölvuleik, hönnun, verðlaun og viðskiptadagbók. Tímaritið kemur út þrisvar sinnum á ári og er því dreift án endurgjalds til fjölmargra aðila erlendis. 
Nánar >

Frá hugmynd til markaðar (HH2) á Suð-Austurlandi

Undirbúningur er hafinn fyrir verkefnið Frá hugmynd til markaðar, HH2, sem verður haldið á Suð-Austurlandi í haust. Verkefnið er sérstaklega lagað að þörfum lítilla og meðalstórra fyrirtækja og hagsmunaaðila í ferðaþjónustu, með áherslu á samstarf, innan og milli svæða.  Nánar >

Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér