Ef þú sérð ekki póstinn smelltu hér

5. tbl. 2009

Heimsmeistaramót íslenska hestsins, Brunnadern, Sviss

Útflutningsráð skipuleggur nú þátttöku fyrirtækja á sölu- og sýningarsvæði heimsmeistaramóts íslenska hestsins sem að þessu sinni verður haldið í Brunnadern, Sviss dagana 3.-9. ágúst nk. Það verða 6 aðilar sem verða á sameignlegu sýningarsvæði Íslands þetta eru: Glófi, Hestheimar, Kálfholt hestaferðir, Primex, Hestatorgið og Eiðfaxi. Nánar >

Fjárfestingarþing í Sochi 17.-20. september

Útflutningsráð kannar hvort áhugi sé fyrir þátttöku í fjárfestingarþinginu Forum Kuban sem haldið verður í borginni Sochi við Svartahaf dagana 17.-20. september nk. Svæðið þar í kring er eitt af örfáum svæðum þar sem er vinnanlegur jarðhiti og því eru möguleikar á verkefnum eða samstarfi á því sviði sem og einnig í framkvæmdum vegna vetrarólympíuleikanna sem haldnir verða í borginni 2014. Nánar >

Sýningar í haust

Útflutningsráð skipuleggur þátttöku á sýningar af ýmsum toga sem fram fara í haust. Um er að ræða hestasýningu, bókasýningu, sýningu um umhverfislausnir og sjávarútvegssýningar. Nánar >

Áhugavert að kynnast aðstæðum í Hvíta-Rússlandi

Sendinefnd á vegum Útflutningsráðs var á ferð um Hvíta-Rússland í liðinni viku til að kanna viðskipta möguleika þar í landi og naut aðstoðar Viðskiptaráðs Minsk borgar í ferðinni. Einnig aðstoðaði sendiráð Íslands í Moskvu við undirbúing og fylgdi Yury Korolev viðskiptafulltrúi sendinefndinni. Nánar >

Skráning í sendinefnd til Póllands er til 15. ágúst

Útflutningsráð í samvinnu við sendiráð Íslands í Berlín skipuleggur nú viðskiptasendinefnd til Póllands 6.-9. október. Farið verður til tveggja borga í sömu ferð og þannig opnað fyrir fleiri möguleika á mismunandi markaðssvæðum.  Nánar >
Sendinefndir í haust

Útflutningsráð undirbýr viðskiptasendinefndir í haust, m.a, til Finnlands, New York, Chile og Spánar. Nánar >

You are in control - Framtíð menningar- og afþreyingarviðskipta
Alþjóðleg ráðstefna, You Are In Control, verður haldin í þriðja sinn í Reykjavík dagana 23. og 24. september næstkomandi. Rýnt verður í þróun og tækifæri í stafrænum viðskiptamódelum ásamt því að skoða samlegðaráhrif mismunandi listforma og áhrif á listsköpun. 
 Nánar >

Útherji
Fréttablað Útflutningsráðs, Útherji er kominn út. Í blaðinu eru ýmsar greinar, viðtöl og fróðleikur.
Þeir sem óska að fá blaðið sent er bent á að hafa samband í tölvupósti utflutningsrad@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000. Einnig er hægt að nálgast pdf útgáfu af blaðinu á vefnum  Nánar >

Sumarleyfi starfsfólks

Starfsfólk Útflutningsráðs verður í sumarleyfi dagana 13. júlí til 4. ágúst.
Líkt og undanfarin ár verður skrifstofan lokuð í þrjár vikur.
Vegna verkefna framundan er vert að benda á upplýsingar um starfsfólk á vefnum.

Útflutningsráð Íslands · Borgartún 35, 105 Reykjavík · Sími 511 4000 · Fax 511 4040
utflutningsrad@utflutningsrad.is · www.utflutningsrad.is
Ef þú óskar eftir því að afskrá netfang þitt smelltu hér