Samstarfsverkefni Norðurlandanna fyrir umhverfistæknifyrirtæki
Nordic Technical Environmental Solutions (NETS) verkefnið er sameiginlegur kynningarvettvangur fyrir umhverfistæknifyrirtæki á Norðurlöndum og er því ætlað að ná fram samlegðaráhrifum norrænna fyrirtækja og stofnana með sérstaka áherslu á lítil og meðalstór fyrirtæki. Að hægt sé að bjóða upp á heildarlausnir umhverfistæknifyrirtækja sem leysa verkefni af öllum stærðargráðum hvar sem er í heiminum.
Það helsta sem stefnt er að ná með samlegðaráhrifum verkefnisins er:
· Að búa til sameiginlegt vörumerki „Nordic Cleantech“sem markaðssett er undir einni regnhlíf
· Að vera með sameiginlegar kynningarleiðir eins og með vefsíðu, bæklingum og fleira
· Að sameiginlega standa sterkari að vígi við að finna og markaðssetja sig inn á nýja markaði með þátttöku í ráðstefnum og fyrirtækjastefnumótum
· Að mynda grundvöll fyrir uppbyggingu viðskiptasambanda á milli þátttakenda.
NETS verkefnið er styrkt af Nordic Innovation Centre (NICe), og hófst fyrir tveimur árum þegar Finnar, Svíar, Danir og Norðmenn hófu samstarf. Nú hefur Íslendingum verið boðin þátttaka í næsta fasa verkefnisins sem mun standa yfir fram til ársins 2012
Það sem framundan í verkefninu er:
Nordic Green II - Ráðstefna og sýning í Silicon Valley í Kaliforníu þann 27. og 28. apríl nk.
Atburðurinn er sérstaklega gott tækifæri fyrir þá sem eru að leita að samstarfsaðilum og/eða fjármagni og þurfa að kynna sína vöru og/eða þjónustu fyrir sínum fagmarkaði.
Kostnaður við þátttöku er frá 150 USD upp í 10.000 USD og fer eftir hvers konar aðkomu viðkomandi fyrirtæki vill hafa að ráðstefnunni og sýningunni.
Það er Hlynur Guðjónsson, viðskiptafulltrúi Íslands í Norður-Ameríku, sem er tengiliður Íslands við ráðstefnuna í Silicon Valley og fyrir þá sem vilja ræða málin nánar þá er hægt að ná í Hlyn í síma 545 7766 en þegar hringt er frá Íslandi þá er hringt eins og um innanlandsnúmer á Íslandi væri að ræða. Netfangið hans er hlynur@mfa.is.
Nánari upplýsingar um Nordic Green II
Dagskráin
Vefsíða Nordic Green II






