Þriðjudaginn 7. febrúar boðar Íslandsstofa til fundar um möguleg tækifæri ferðaþjónustuaðila í kvikmyndatengdri ferðaþjónustu. Fundurinn verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica kl. 10-12.
Á undanförnum árum hefur orðið mikil aukning á stórum verkefnum í kvikmyndagerð hér á landi. Í sumum tilfellum er um að ræða stórmyndir sem vakið hafa athygli víða um heim og fangað hugi kvikmyndaáhugafólks. Áhugavert er að skoða hvaða tækifæri þetta skapar fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki til aukins vöruframboðs.
Dagskrá:
- Joakim Lind, markaðssérfræðingur og einn eiganda almannatengslafyrirtækisins Cloudberry communication í Svíþjóð:
- Skammtíma- og langtímaáhrif framleiðslu og markaðssetningar kvikmynda
- Stieg Larsson þríleikurinn og áhrif á ímynd Svíþjóðar
- Áhrif kvikmyndanna um Wallander
- Harvey Edington, kvikmyndasérfræðingur hjá National Trust í Bretlandi:
- Hvernig kvikmyndagerð getur stuðlað að auknum heimsóknum á vissa tökustaði og aukið sögulegt gildi þeirra í leiðinni
National Trust hefur til umráða 200 sögufrægar byggingar og 970 km af strandlengju, auk rúmlega 2000 km2 landsvæðis, þar sem að meðaltali þrjú kvikmyndateymi eru að störfum á hverjum degi.
Dæmi um kvikmyndir eru t.d. Pride and Prejudice, Harry Potter, The Dark Knight og Tomorrow Never Dies.
- Þór Kjartansson, kvikmyndaframleiðandi hjá TrueNorth:
- Möguleg tækifæri fyrir ferðaþjónustuaðila í gegnum kvikmyndagerð á Íslandi
- Yfirlit yfir tökustaði á Íslandi
Fundarstjóri: Einar H. Tómasson – Film in Iceland
Skráning fer fram á islandsstofa@islandsstofa.is eða í síma 511 4000.
Nánari upplýsingar veita Björn H. Reynisson, bjorn@islandsstofa.is og Einar H Tómasson, einar@filminiceland.com






