Samtök ferðaþjónustunnar og Íslandsstofa halda fund 1. febrúar kl. 13-16 á Grand Hótel Reykjavík (Gullteig B).
Efni fundarins er franski ferðamarkaðurinn og franski ferðamaðurinn nú og í framtíðinni.
Fundurinn fer fram á ensku
Dagskrá:
13:00 Velkomin
Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar
13:15 Franski ferðamarkaðurinn – straumar, stefnur og sérkenni
Jürgen Bachmann, stjórnarmaður í CETO – Samtökum franskra ferðaheildsala
14:15 Hvernig er fyrir franskan ferðaheildsala að eiga í viðskiptum við Ísland?
Eric Biard, framkvæmdastjóri Island Tours France
14:50 Kaffi
15:10 Top Resa sýningin - Athygliverður vettvangur til að nálgast franska markaðinn
Armelle Guillot, sölustjóri Reed exhibitions
15:40 Samantekt fundarstjóra
Davíð Jóhannsson, verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu
Fyrirspurnum verður svarað eftir hvern fyrirlestur
Aðgangur er ókeypis.







