Viðskiptafulltrúi Íslands í Norður-Ameríku í heimsókn 8.-9. september nk.
Morgunverðarfundur kl. 08:30 – 10:00, Borgartúni 35, 6. hæð.
Hlynur Guðjónsson, ræðismaður og viðskiptafulltrúi í Norður-Ameríku mun fjalla um dreifileiðir, samningagerð og markaðsaðgang í Bandaríkjunum og taka dæmi um innkomu nokkurra íslenskra fyrirtækja á markaðinn.
Ingibjörg Gréta Gísladóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi The Designers Market, hefur sl. ár unnið að markaðsaðgangs áætlun fyrir Bandaríkjamarkað og mun hún lýsa fyrstu skrefum fyrirtækisins inn á þennan markað og hvernig verkefnið hefur mótast frá fyrstu snertingu við markaðinn.
Þeir sem hafa hug á að skrá sig eru hvattir til að gera það sem fyrst í síma 511 4000 eða með tölvupósti á islandsstofa@islandsstofa.is.
Nánari upplýsingar veita:
Andri Marteinsson, andri@islandsstofa.is og Hermann Ottósson, hermann@islandsstofa.is.






