Fundaröð í Kanada
sunnudagur 26. september 2010 - föstudagur 1. októberÍslandsstofa hefur skipulagt vinnustofur (workshop) í fimm borgum Kanada; Halifax, Toronto, Winnipeg, Calgary og Vancouver, 26. september - 1. október nk. Verkefnið er unnið í samvinnu við Ferðamálaráð Grænlands.
Þegar hafa eftirtalin fyrirtæki skráð þátttöku: Ferðaþjónusta bænda, Fjallaleiðsögumenn, Íshestar, ITA, Reykjavík Hótel, Hótel Reynihlíð, Allrahanda, Terra Nova, Kynnisferðir, FA Travel, Iceland Travel, Bláa Lónið, Icelandair og Iceland Express auk Air Greenland, Arctic Adventure og Destination East Greenland frá Grænlandi.
Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@islandsstofa.is eða í síma 511 4000






