Forseti Íslands heimsækir heimsýninguna í Shanghai þar sem haldið verður málþing um orkumál og opnuð sýning á íslenskri hönnun.
Samhliða eru skipulagðir B2B fundir fyrir um 10 fyrirtæki sem vilja nýta sér þá athygli sem koma forseta vekur.
Það eru fyrirtækin: 66°N, Batteríið arkitektar, Latibær, Lysi hf, MaintSoft , Marorka, Menn og Mýs, Nordic water, REYST orkuskólinn og Verkís.
Á orkuráðstefnunni þar sem forseti Íslands mun halda opnunarávarp munu fulltrúar Orkuveitu Reykjavíkur, Landsvirkjunar, Geysir Green Energy, Verkis, Reyst, Reykjavík Geothermal og Faxaflóahafna halda erindi auk fulltrúar kínverskra fyrirtækja þar á meðal Sinopec Star sem er stærsta orkufyrirtæki Kína.
Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@islandsstofa.is eða í síma 511 4000.






