Sýningin the Scandinavia Show verður haldin í fyrsta skipti í London þann 9.-10. október nk. Scan Magazine stendur fyrir skipulagningunni en Visit Denmark er aðal stuðningsaðilinn og verða öll Norðurlöndin þátttakendur í sýningunni.
Visit Iceland/Íslandsstofa verður með aðstöðu í „Travel“ hlutanum með 12 m2 bás. Þetta er neytandasýning og markhópurinn er svokallað ABC1 sem er fólk með góðar tekjur í góðum stöðum.
Þátttökugjald fyrir hvert ferðaþjónustufyrirtæki er kr. 190.000. Fjöldi fyrirtækja verður takmarkaður enda básinn ekki stór. Vinsamlega tilkynnið um þátttöku fyrir 10. september.
· Skráningareyðublað (pdf)
Nánari upplýsingar:
Sigríður Gróa Þórarinsdóttir, siggagroa@islandsstofa.is, sími 511 4000.
Nánari upplýsingar um sýninguna er að finna á eftirfarandi vefsíðum:
www.telegraph.co.uk/sponsored/travel/scandinavia-show/
www.scandinaviashow.co.uk/






