Íslandsstofa kannar áhuga fyrirtækja á þátttöku í hótel- og veitingahúsasýningunni IGEHO í Basel í Sviss 19.-23. nóvember 2011, en þar býðst Íslendingum að vera í heiðurssæti – athyglinni yrði m.ö.o. beint að Íslandi. Ætlunin er að kynna sérstöðu Íslands, bæði sem framleiðanda á úrvalshráefni til matargerðar, og sem ferðamannalands er státar af óspjallaðri náttúru. Um 100 þúsund gestir mæta jafnan á sýninguna, sem haldin er annað hvert ár, og er stærstur hluti þeirra hótel- og veitingahúsaeigendur frá Sviss og Þýskalandi.
IGEHO er gríðarlega stór og skiptist sýningin niður á nokkra geira atvinnulífsins, þar sem áherslan er lög á matvæli. Íslenskum fyrirtækjum býðst 200-400 m2 sýningarpláss á besta stað í matar- og drykkjarhöllinni. Er hugmyndin að setja þar upp stóra Íslandseyju þar sem matvæli, s.s. kjöt, fiskur, mjólkur- og drykkjarvörur yrðu kynnt, auk ferðaþjónustu.
Enda þótt IGEHO sé fyrst og fremst matvælasýning nær hún til allrar annarrar vöru sem tilheyrir hótel- og veitingahúsarekstri. Þannig fer þar fram viðamikil kynning á matvælaframleiðslu, bæði kjöti og fiski, drykkjarvöru og hvers kyns tækni. Þess má geta að Svisslendingar setja afar strangar kröfur um vottun og sjálfbærar veiðar í sjávarútvegi, en upprunamerki fyrir íslenskar sjávarafurðir og vottun sjálfbærra fiskveiða - Responsible Fisheries - er nú einmitt að líta dagsins ljós, þannig að unnt verður að kynna það til sögunnar á IGEHO.
Fyrirtæki sem áhuga hafa á þátttöku í IGEHO 2011 eru hvött til að hafa sem fyrst samband við Berglindi Steindórsdóttur, sem veitir allar frekari upplýsingar; berglind@islandsstofa.is, eða í síma 511 4000.
Lesa má nánar um sýninguna á www.igeho.ch/go/id/ss/lang/eng/






