Íslandsstofa kannar áhuga fyrirtækja á þátttöku í orkusýningunni World Future Energy Summit 2011 sem fram fer í Abu Dhabi dagana 17.-20. janúar. Líkt og undanfarin tvö ár er stefnt að sameiginlegum bás íslenskra fyrirtækja á sýningunni en þátttakan hefur skilað fyrirtækjum mjög góðum árangri.
WFES er ráðstefna og sýning um framtíðarorkulausnir sem laðar að helstu sérfræðinga heims á því sviði. Með ákvörðun um að staðsetja höfuðstöðvar IRENA (International Renewable Energy Agency) í Abu Dhabi hefur WFES hlotið aukið vægi sem leiðandi sýning í framtíðarorkulausnum. Þetta er í fjórða sinn sem sýningin er haldin en hún hefur vaxið jafnt og þétt og fengið mjög mikla umfjöllun. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, var sérstakur gestur sýningarinnar í janúar sl. og flutti lokaávarp, ásamt Alberti prins af Mónakó.
Fyrirtæki áhugasöm um þátttöku í WFES 2011 eru hvött til að hafa samband við Aðalstein H. Sverrisson hjá Íslandsstofu, adalsteinn@islandsstofa.is, s. 511 4000






