Hinar árlegu sjávarútvegssýningar International Boston Seafood Show og Seafood Processing America verða að þessu sinni haldnar dagana 20.–22. mars 2011 í Boston.
Íslandsstofa vill kanna áhuga fyrirtækja á þátttöku á þessum sýningum.
IBS og SPA eru vel þekktar hér á landi en þetta eru stærstu sjávarútvegssýningar í Bandaríkjunum. Íslensk fyrirtæki hafa löngum sótt þessa sýningu heim og gera má ráð fyrir að svo verði aftur næsta ár. Það eru um 800 fyrirtæki sem sýna þarna á hverju ári og gestir eru um 18.000.
Áhugasömum fyrirtækjum er bent á að hafa samband við Aðalstein Hauk Sverrisson, adalsteinn@islandsstofa.is eða Berglindi Steindórsdóttur, berglind@islandsstofa.is, sími 511 4000.
Vefsíða sýningarinnar er: www.bostonseafood.com/10/public/Content20782.aspx






