Íslandsstofa vill kanna áhuga fyrirtækja á þátttöku á fiskveiðisýningunni Pacific Marine Expo sem haldin verður í Seattle, Washington dagana 18.–20. nóvember. Sýningin er ætluð fyrirtækjum sem þjónusta útgerðarfyrirtæki með tækjabúnað , veiðarfæri og bátalausnir en einnig má finna fyrirtæki sem sérhæfa sig í vinnslubúnaði.
Þeir sem heimsækja þessa sýningu eru m.a. útgerðarmenn frá Alaska og Kaliforníu og búast má við um 7000 gestum á sýninguna, sýnendur í fyrra voru um 120.
Þetta yrði í fyrsta sinn sem Íslandsstofa væri aðili að þessari sýningu en áhugi fyrir henni hér á landi hefur farið stöðugt vaxandi.
Nánari upplýsingar veita Aðalsteinn Haukur Sverrisson, adalsteinn@islandsstofa.is og Berglind Steindórsdóttir, berglind@islandsstofa.is, sími 511 4000
Vefsíða sýningarinnar er: www.pacificmarineexpo.com/10/public/enter.aspx






