Fundurinn er haldinn í Zagreb og er kjörið tækifæri til að komast í samband við alla helstu þátttakendur í uppbyggingu atvinnulífs í A-Evrópu. Boðið er upp á fundarbókanir þar sem fyrirtæki geta mælt sér mót við forsvarsmenn bankans og einnig fulltrúa þeirra 30 landa sem eru á starfssvæði hans. Auk þess eru yfirgripsmiklar kynningar á þeim verkefnum sem eru í gangi í þessum löndum.
Fundurinn er eitt besta tækifæri sem fulltrúar í viðskiptalífi og fjárfesta á svæðinu hafa til að hitta viðskiptaaðila á öllum sviðum atvinnulífsins – auk háttsettra opinberra aðila frá viðkomandi löndum. Þetta er kjörinn vettvangur fyrir alla í ráðgjafarþjónustu, hönnun, o.fl.
Sjá einnig hér http://ebrd.com/new/am/index.htm.
Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Þór Jónsson thorleifur@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000






