Nordic Green II - Ráðstefna og sýning í Silicon Valley í Kaliforníu þann 27. og 28. apríl nk.
Nordic Green II er haldin til að fylgja eftir mjög árangursríkri ráðstefnu sem haldin var 2008. Í ár mun Silicon Valley vera staðurinn þar sem stjórnendur umhverfistæknifyrirtækja, frá Norðurlöndunum, Eistlandi og Bandaríkjunum, og fyrirtækja sem tengjast þeim geira hefja samstarf fyrir komandi framtíð á sviði umhverfistæknilausna.
Atburðurinn er sérstaklega gott tækifæri fyrir þá sem eru að leita að samstarfsaðilum og/eða fjármagni og þurfa að kynna sína vöru og/eða þjónustu fyrir sínum fagmarkaði.
Kostnaður við þátttöku er frá 150 USD upp í 10.000 USD og fer eftir hvers konar aðkomu viðkomandi fyrirtæki vill hafa að ráðstefnunni og sýningunni.
Það er Hlynur Guðjónsson, viðskiptafulltrúi Íslands í Norður-Ameríku, sem er tengiliður Íslands við ráðstefnuna í Silicon Valley og fyrir þá sem vilja ræða málin nánar þá er hægt að ná í Hlyn í síma 545 7766 en þegar hringt er frá Íslandi þá er hringt eins og um innanlandsnúmer á Íslandi væri að ræða. Netfangið hans er hlynur@mfa.is.
Íslenska kynningin á Nordic Green II






