Conxemar - Vigo, Spánn
þriðjudagur 5. október 2010 - fimmtudagur 7. októberSjávarútvegssýningin Conxemar 2010 er haldin í Vigo, Spáni dagana 5.-7. október nk. Íslandsstofa verður með bás á sýningunni þar sem aðaláherslan er lögð á að kynna upprunamerki íslenskra sjávarafurða.
Íslandsstofa vill bjóða þeim íslensku fyrirtækjum sem eru á sýningunni afnot að fundaraðstöðu sem verður á básnum, þeim að kostnaðarlausu. Þeim sem vilja nýta sér þá aðstöðu eru beðin að hafa samband við Aðalstein eða Berglindi til þess að bóka fundarborð. Hver fundartími mun takmarkast við eina klukkustund.
Vefsíða sýningarinnar.
Nánari upplýsingar veita:
Aðalsteinn Haukur Sverrisson, adalsteinn@islandsstofa.is eða Berglind Steindórsdóttir berglind@islandsstofa.is sími 511 4000.






