Framhaldsverkefni fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á Austurlandi.
Útflutningsráð býður ferðaþjónustufyrirtækjum á Austurlandi þátttöku í verkefninu Frá hugmynd til markaðar – HH2 sem er sjálfstætt framhald hins árangursríka og vinsæla verkefnis Hagvöxtur á heimaslóð (HH).
Verkefnið er sniðið að þörfum fólks í ferðaþjónustu og ætlað eigendum, framkvæmdastjórum, forstöðumönnum eða markaðsstjórum. Mikil áhersla er lögð á virka þátttöku í verkefninu.
Tilgangur verkefnisins er:
• Vinna markvisst að vöruþróun með hliðsjón af einkennum og styrkleikum viðkomandi landsvæðis.
• Auka markaðsvitund þátttakenda varðandi sölu, kynningu og markaðssetningu.
• Móta drög að kynningaráætlun fyrir valdar söluvörur.
Vinnufundirnir verða þrír og standa yfir í tvo daga, 27.-28. janúar, 25.-26. febrúar og 24.-25. mars 2010. Fundarstaðir verða valdir eftir þátttöku en fundirnir verða haldnir á Austurlandi.
Gjald fyrir þátttöku er 50.000 kr. innifalið í því eru fyrirlestrar, ráðgjöf, námsgögn, fæði og gisting á meðan vinnufundum stendur. Þátttakendur bera sjálfir kostnað af ferðum til og frá vinnufundum.
Nánari upplýsingar veita Björn H. Reynisson, bjorn@utflutningsrad.is og Hermann Ottósson, hermann@utflutningsrad.is sími 511 4000.






