Viðskiptasendinefndir 2009
Janúar
12.-16.
Ferðaþjónustufundir í Litháen, Lettlandi og Eistlandi ásamt sýningarþátttöku á Matka ferðakaupstefnunni. 16 fyrirtæki tóku þátt. Sjá nánar í frétt hér.
19.-21.
World Renewable Energy Summit í Abu Dhabi. Sjö fyrirtæki mættu til leiks og áttu góða ferð á ráðstefnu og sýningu sem Útflutningsráð skipulagði þátttöku á. Sjá nánar í frétt hér.
Mars
2.-7.
Viðskiptasendinefnd til Japan. Öflugur hópur fyrirtækja bæði úr ferðaþjónustunni, orkumálum. fjárfestingu o. fl. átti mikinn fjölda funda í Tókýó. Ferðin var skipulögð í samvinnu við sendiráð Íslands í Tókýó og Ferðamálastofu. Sjá nánar í frétt hér.
Apríl 28.-30.
Fundaferð um Noreg
Í samvinnu við Ferðamálastofu var skipulögð fundaferð til þriggja borga í Noregi. Ósló 28. apríl og vinnufundur haldinn þar eftir hádegi. 29. apríl Stavanger. Vinnufundur var haldinn þar eftir hádegi og síðan ekið til Bergen. Síðasti vinnufundurinn var svo í Bergen að morgni 30. apríl en farið heim í gegnum Kaupmannahöfn um kvöldið. Sjá nánar í fréttum hér og hér
Maí
15.-16.
Aðalfundur EBRD í London. Fulltrúar Útflutningsráð sátu fundinn og öfluðu viðskiptasambanda. Í framhaldi af því komu sérfræðingar bankans til landsins og funduðu með fulltrúum íslenskra fyrirtækja.
27.-29.
Viðskiptasendinefnd til Færeyja. Sjá nánar.
Júní 30. - 2. júlí
Minsk, Hvíta-Rússlandi – Könnunarleiðangur og fundaferð þar sem fundað varð með fulltrúum stjórnvalda og eins verslunarráðum og fleiri þeim aðilum sem gáfu yfirsýn um viðskiptaumhverfi í landinu. Ferðin var unnin í samvinnu við sendiráð Íslands í Moskvu og ræðismann Íslands í Brest. Hvíta-Rússland er stutt frá evrópskum mörkuðum og byggir atvinnulíf þar á langri iðnaðarhefð. Þátttakendur í ferðinni voru frá Iceland Seafood, Kleros fjárfestingarfélagi, Iceland pelagic og MP banka. Sjá frétt sem er m.a. með myndskeiði frá sjónvarpinu í Minsk. hér
Október 20.-24.
Útflutningsráð skipulagði viðskiptasendinefnd til New York. Markmið ferðarinnar var að leita eftir viðskiptasamböndum fyrir íslensk fyrirtæki sem þegar hafa sett vöru á markað á Íslandi. Dagskrá ferðarinnar er unnin í samvinnu við Manhattan Chamber of Commerce og framkvæmdin í höndum Hlyns Guðjónssonar viðskiptafulltrúa og hans samstarfsmanna
Október 22. til 28. Markaðshópur 13 ferðaþjónsutufyrirækja var með vinnufundi í Frankfurt og Berlín. Áður höfðu fulltrúar fyrirækjana setið þriggja daga námskeið í sölu og samningatækni sem nýttist þeim vel í viðræðum við yfir 100 þýskar ferðaskrifstofur sem sóttu fundina. Voru þeir haldnir á fljótabátum á siglingu um fljótin Main og Spree og þótti nýlunda. Sjá nánar um það hér og hér
Nóvember 3.-8.
Útflutningsráð skipulagði viðskiptasendinefnd til Barcelona á Spáni. Markmið ferðarinnar var að leita eftir viðskiptasamböndum fyrir íslensk fyrirtæki.Dagskrá ferðarinnar er unnin í samvinnu við viðskiptaráð Barcelona. Ferðin heppnaðist í alla staði vel eins og lesa má hér
Nóvember 4.-6.
Zagreb og Belgrad á Balkanskaga. – Dagana 2.-4. nóvember voru Norrænir dagar haldnir í 7. skipti í Cróatíu. Þetta samstarf norrænu sendiráðana í Zagreb ásamt þáttöku Útfluningsráðs og sendiráðs Íslands í Berlín hefur fest sig í sessi sem sterkur vetvangur til að kynnna norræn fyrirtæki. Yfirskrift þessa árs er „Green, Clean & Sustainable“ og var öllum fyrirtækjum sem starfa að öllum málaflokkum sem tengjast umhverfismálum boðin þátttaka. Verkfræðistofan Efla tók þátt í annað skipti og náði mikilvægum samningums eins og lesa má hér oghér
Desember 3. til 4. Ferðaþjónustufyriræki í Amsterdam og Brussel. Markaðshópur ferðaþjónustufyrirtækja heldur áfram yfirferð sinni um helstu markaði og verðurmeð vinnufundi á skipinu Pollux í Amsterdam þann 3. desember og á Hótel Bloom í Brussel þann 4. desember.






