Viðskiptasendinefndir 2008
Abu Dhabi og Katar 19.-25. janúar
Ferð viðskiptasendinefndar til Persaflóaríkja dagana 19.-25. janúar gekk mjög vel. Þátttakendur voru á einu máli um að bæði í Abu Dhabi og Katar sé mikið af samstarfstækifærum og var skrifað undir viljayfirlýsingar og samstarfssamninga í ferðinni. Meira um ferðina.
Abu Dhabi og Katar 19.-25. janúar
Ferð viðskiptasendinefndar til Persaflóaríkja dagana 19.-25. janúar gekk mjög vel. Þátttakendur voru á einu máli um að bæði í Abu Dhabi og Katar sé mikið af samstarfstækifærum og var skrifað undir viljayfirlýsingar og samstarfssamninga í ferðinni. Meira um ferðina.
Indland 8.-11. febrúar. Útflutningsráð skipulagði í samvinnu við sendiráð Íslands í Nýju-Delí viðskiptasendinefnd til Indlands dagana 8.-11. febrúar nk. Boðið var upp á skipulagða viðskiptafundi í Nýju-Delí þann 8. febrúar og Mumbai þann 11. febrúar. Frétt úr ferðinni. Önnur frétt.
Mexíkó 11.-14. mars. Útflutningsráð skipulaði viðskiptasendinefnd til Mexíkó 11.-14. mars í tengslum við opinbera heimsókn forseta Íslands til landsins. Áhersla var lögð á að koma á tengslum við háttsetta aðila í viðskiptalífi Mexíkó í gegnum fundi, kynningar og móttökur. Fyrirtæki í ýmsum atvinnugreinum tóku þátt og fengu afar góðar viðtökur. Áhugasamir eru hvattir til að skoða nýuppsetta upplýsingasíðu um Mexíkó. Einnig er frétt úr ferðinni hér.
Birmingham 13.-14. mars. Útflutningsráð skipulagði viðskiptasendinefnd fyrir ferðaþjónustufyrirtæki dagana 13.-14. mars til Birmingham í Bretlandi. Ferðin er liður í markaðssetningu íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja á breska markaðinn. Boðið var upp á skipulagða viðskiptafundi ásamt fræðslu um breska markaðinn. Fundirnir fóru fram á sama stað og sýningin The Ordnance Survey Outdoor Show og gafst fólki því tækifæri til að kynna sér sýninguna og hvað er í boði. Alls tóku 8 fyrirtæki þátt í ferðinni og áttu árangursríka fundi. Sjá nánari upplýsingar hér í frétt
Barbados 25.-27. mars. Í tilefni af heimsókn utanríkisráðherra til Barbados í Karíbahafi í lok mars mánaðar skipulagði Útflutningsráð Íslands viðskiptasendinefnd til eyjarinnar. Markmið ferðar ráðherra varm.a. að eiga viðræður við ráðamenn Karíbahafsríkja um samstarf og þróunarsamvinnu Íslands á svæðinu. Til viðræðna var boðið fulltrúum frá 16 ríkjum og áhersla lögð á þátttöku þeirra sem hafa með sjávarútvegs-, orku- eða jafnréttismál að gera. Barbados er eitt af leiðandi ríkjum á svæðinu, er mest þróað af þeim og er góð mistöð flugsamgangna fyrir allt Karíbahafssvæðið. Á Barbados eru miklir möguleikar í sjávarútvegi og fjölþættri annari starfsemi s.s. fjármálum og fasteignum. Á nærliggjandi eyjum eru miklir og vannýttir möguleikar í jarðhitavinnslu. Haldin var ráðstefna þann 26. mars þar sem styrkleikar Íslands á sviði sjávarútvegs og orkuvinnslu voru kynntir fyrir fulltrúum stjórnvalda Karíbahafsríkja. Mikill áhugi var hjá heimamönnum og áttu þau fyrirtæki sem tóku þátt afar gagnlega fundi. Sjá nánar frétt hér og á þessari síðu eru allar glærur frá fyrirlestrum ásamt miklu öðru efni.
Kaliningrad, Rússlandi 14.-16. apríl. í tilefni af 60 ára afmælishátið síldarútflutnings frá Íslandi til Kaliningrad fór hópur fyrirtækja til Kaliningrad dagana 14 til 16. apríl. Áhersla var á þáttöku fyritækja úr sjávarútvegi/vinnslu. Einnig þeir sem höfðu áhuga á fjárfestingum á skattalegu frísvæði. Viðskiptafundir voru skipulagðir 15. og 16. apríl. Fyrirtæki úr sjávarútvegi, fjármálum og flugrekstri tóku þátt. Nánar má lesa í tveimur fréttaskotum sem eru hér og hér.
Kiev Úkraína 17.-19. maí. Ársfundur EBRD - European Bank of Reconstruction and Development. Starfmenn Útflutningsráðs sátu fundinn ásamt fulltrúum viðskiptaráðuneytis og MP banka og ræðismanna Íslands í Úkraínu og Úkraínu á Íslandi. Náðust afar góðar tengingar við starfsmenn bankans og fulltrúa stjórnvalda í þeim löndum sem bankinn starfar í. Mikilvægt er að nýta bankann við sókn inn í lönd Mið-Asíu þar sem hagvöxtur er afar mikill og mikil þörf fyrir uppbyggingu.
Brussel 27. maí. Viðskiptakynning- og móttaka í Brussel.
Mílanó 28. maí. Viðskipta og fjárfestingarkynning í samvinnu við Fjárfestingarstofu.
Toronto, Kanada 9.-11. júní. Fyrirtækjastefnumót. Ferðaþjónusta, o.fl. Alls tóku 16 ferðaþjónustu fyrirtæki þátt í sendinefndinni sem náði góðum árangri. Var fléttað saman fræðslu um markaðinn, fyrirfram skipulögðum viðskiptafundum og fjölmennri móttöku þar sem ný tækifæri sköpuðust. Sjá frétt á vef Útflutningsráðs um ferðina hér og í Travel Hot News hér.
Baku og Tbilisi 22.-27. júní. Georgía og Aserbaidsjan. Könnunarleiðangur. Ferðin tókst vel og voru þátttakendur í sendinefndinni margs fróðari. Tókst að ná góðum samböndum við heimamenn. Nánar má lesa í frétt hér
Ashtana og Almaty, Kasakstan 21.-26. September. Miklir möguleikar í fjarlægu landi. Íslensk fyrirtæki hafa styrkleika sem þar geta leitt til arðvænlegra viðskipta. Sjá nánar í frétt hér
Glasgow og Edinborg 14.-16. október. Ferðaþjónustufyrirtæki mættu á fyrirtækjastefnumót í þessum tveimur stærstu borgum Skotlands. Alls voru það fulltrúar 8 fyrirtækja sem fóru í sendinefndina og tókst hún vel. Sjá nánar í frétt hér.
Fimm borgir Evrópu. 13. 19. nóvember. Fundarröð í samvinnu við Ferðamálastofu, SAF, utanríkisráðuneytið og Höfuðborgarstofu til að skýra stöðu á Íslandi. Fundað í Stokkhólmi, París, Kaupmannahöfn, Frankfurt og Ósló. Sjá fréttir hér og hér.
Zagreb, Króatía. 24.-25. nóvember. Viðburðaferð. Nordic Days in Croatia. Þema: „Energy, Efficiency and Environment.“ Ítarleg heimasíða og skráing er á www.Nordicdays.info. Þrjú íslensk fyrirtæki kynntu þjónustu sína. Sjá nánar frétt hér og myndir hér.






